
Hér er komin verulega aukin og endurbætt útgáfa Ensk-íslenskrar skólaorðabókar sem kom fyrst út árið 1986. Við endurskoðunina var sérstök áhersla lögð á orðaforða á þeim sviðum þar sem mestar breytingar hafa orðið, svo sem í upplýsingatækni og viðskiptum, auk þess sem reynt var að gera daglegu máli sem best skil.
Höfundar eru Jón Skaptason, ritstjóri, Dóra Hafsteinsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Ingrid Markan, Sigríður Harðardóttir, Þórunn Hafstein. Að endurbættri útgáfu unnu Ingrid Markan (ritstjórn), Jón Skaptason og Pétur Knútsson Ridgewell (hljóðritun).
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.