Fyrsta bók sinnar gerðar hér á landi, samin til að svara kröfum um nýtilegan og handhægan texta handa þeim sem stunda grískunám bæði hér og erlendis.
Allar þýðingar miðast fyrst og fremst við algengustu merkingu orðsins, en reynt hefur verið að aðskilja þýðingar í merkingaflokka þegar um samheiti og margheiti var að ræða. Vert er að benda á að í grísku er sama orðið oft notað bæði sem lýsingarorð og nafnorð og hefur sá háttur verið hafður að láta lýsingarorðið koma á undan, en nafnorðið í kjölfarið. Varðandi landa- og borgarheiti hefur höfundur ákveðið að hafa einungis þau heiti sem bæði eru mest notuð og fylgja langri hefð, algengri einnig á Íslandi, um að snara þeim yfir á grískan rithátt, líkt og Íslendingar gera þegar þeir tala um Kænugarð og Dyflinni.
Höfundur er Paolo Turchi. Hagþenkir styrkti samningu verksins um 1,3 milljónir. Birt á Snöru haustið 2020.
Til stendur að semja íslensk-gríska hlutann í nánustu framtíð.
Dæmi um heimildaskráningu:
Orðabók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.