Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðing milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
  1. Snara
  2. Orðabækur og uppflettirit
  3. Hugtakasafn Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Hugtakasafn Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Hugtakasafn Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins

Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins hefur birt hugtakasafn sitt á vefslóðinni: www.hugtakasafn.utn.stjr.is.

Hátt í aldarfjórðung hafa verið þýddir hjá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins lagatextar sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn). Eitt stærsta verkefnið í þýðingarstarfinu er skilgreining nýrra hugtaka í textunum og leit að íslenskum þýðingum þessara sérfræðihugtaka (íslenskum íðorðum). Þetta er jafnan tímafrekasti þátturinn í starfinu og oft þarf að smíða nýyrði þegar orðaleitin ber ekki árangur. Frá upphafi þýðingarstarfsins hefur íðorðum og orðasamböndum verið safnað í Hugtakasafn þýðingamiðstöðvar. Hugtakasafnið er birt á vef utanríkisráðuneytisins og hefur verið aðgengilegt á Netinu frá árinu 1995. Flest íðorðanna tengjast hinum margvíslegu sérsviðum EES-samningsins en af þeim má nefna t.d. félagsleg réttindi, flutninga, fjármál, lyf, neytendamál og umhverfismál. Þá eru í safninu mörg íðorð úr lagamáli og stjórnsýslu, svo og heiti milliríkjasamninga, stofnana, nefnda, ráða o.fl. Einnig hefur orðasafn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands verið birt í Hugtakasafninu.

Hjá þýðingamiðstöð er unnið að íðorðastarfi og nýyrðasmíð í samstarfi við sérfræðinga hjá ráðuneytum, opinberum stofnunum, í háskólasamfélaginu og atvinnulífinu. Ný íðorð eru reglulega færð inn. Með þýðingum og íðorðastarfi er sífellt unnið að því að stækka íslenskan orðaforða, efla íslenska tungu og styrkja stöðu hennar á nýjum sviðum.

Aðgangur að safninu er öllum opinn.

Hugtakasafnið er í eigu þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins og unnið af starfsmönnum hennar. Heimilt er að endurnota upplýsingar úr Hugtakasafni, sbr. VII. kafla upplýsingalaga nr. 140/2012, enda sé uppruna upplýsinganna jafnan getið.

Ritstjóri Hugtakasafns þýðingamiðstöðvar er Sigrún Þorgeirsdóttir. Að ritstjórn Hugtakasafns hafa unnið Ásta K. Hauksdóttir Wiium íðorðastjóri, Björgvin R. Andersen íðorðastjóri, Gunnhildur Stefánsdóttir yfirþýðandi, Hálfdan Ó. Hálfdanarson íðorðastjóri og Sindri Guðjónsson lögfræðingur. Reynir Gunnlaugsson er vefstjóri og Björn Þór Jónsson hefur umsjón með forritun.

Hugtakasafnið sem birtist hér á Snöru er tilraunaútgáfa. Safnið er frá vormánuðum ársins 2016. Uppflettiorð eru um 220.000 og skýringar telja 68.000.

Orðabækur og uppflettirit
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning