Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðing milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
  1. Snara
  2. Orðabækur og uppflettirit
  3. Íðorðaskrá endurskoðenda

Íðorðaskrá endurskoðenda

Íðorðaskrá endurskoðenda

Íðorðaskrá endurskoðenda

Inngangur

Hjá Félagi löggiltra endurskoðenda (FLE) starfar orðanefnd sem hefur það hlutverk að uppfæra Íðorðaskrá endurskoðenda sem gefin var út 1996. Margt hefur breyst á þeim tíma sem liðinn er og þá sérstaklega vegna þeirra alþjóðlegu staðla sem endurskoðendur starfa nú eftir. Reikningsskilastaðlar hafa verið þýddir á íslensku og hið sama á við um siðareglur fyrir endurskoðendur. Í stuttu máli kallar ný og breytt hugtakanotkun á sviði endurskoðunar og reikningsskila á uppfærslu orðasafnsins. Sú uppfærsla verður gerð í mörgum stuttum lotum og breytingarnar settar inn eins og verkið vinnst. Hér að neðan er formáli fyrir Íðorðaskrá endurskoðenda sem kom út 1996

Bókin er til sölu hjá FLE. Netfang: fle@fle.is. Sími: 568 8118.

Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefenda.

Formáli

Á árinu 1991 var sett á stofn nefnd á vegum Félags löggiltra endurskoðenda, Orðanefnd FLE. Hlutverk nefndarinnar var í fyrsta lagi að finna heppilegar þýðingar á erlendum orðum á sviði endurskoðunar og reikningshalds og í annan stað að samræma þýðingar á íslenskum reikningsskilum yfir á erlendar tungur, einkum ensku. Nefndin hófst þegar handa við að afla gagna og að velja þau orð og hugtök í íðorðaskrá FLE er féllu að framangreindu verkefni. Með íðorði er átt við sérfræðiorð í tiltekinni fræðigrein.

Íðorðaskrá sú sem Orðanefnd FLE lætur nú frá sér fara (1996) inniheldur rúmlega tvö þúsund orð og hugtök úr enskum texta og þýðingar á þeim yfir á íslenska tungu. Þrátt fyrir að við val þessara orða væri einkum miðað við orð er tengjast endurskoðun, reikningshaldi og skattskilum var óhjákvæmilegt að einhver skörun yrði við aðrar fræðigreinar s.s. hagfræði, lögfræði, tölfræði, tölvufræði, fjármál og viðskipti almennt, en allar þessar greinar snerta störf endurskoðenda á einn eða annan hátt. Að sjálfsögðu er hér ekki um tæmandi orðalista að ræða. Engu að síður er það mat nefndarinnar að þar sé að finna flest þau orð og hugtök sem nýtast í tengslum við störf endurskoðenda hvort heldur er í daglegum störfum þeirra eða námi.

Látið er ógert að orðflokkagreina, kyngreina eða fallbeygja, þau orð er fyrir koma í orðaskránni eins og gjarnan er gert í íslenskum orðasöfnum. Er þá litið til tilgangsins með þessari útgáfu og væntanlegra notenda. Það er von nefndarinnar að íðorðaskrá þessi komi að gagni bæði félagsmönnum í FLE sem og öðrum er fást við málefni tengd reikningshaldi og endurskoðun hvort sem er við störf eða nám.

Orðabækur og uppflettirit
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning