Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðing milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
  1. Snara
  2. Orðabækur og uppflettirit
  3. Íslensk orðabók

Íslensk orðabók

Íslensk orðabók

Íslensk orðabók

Íslensk orðabók er gagnabanki og leiðarvísir um íslenska tungu og endurspeglar samhengið í móðurmálinu frá eddukvæðum til tölvutækni. Hún er ómissandi hjálpargagn við nám og störf og á erindi við alla sem tala íslensku.

Í tölvutækri gerð Íslenskrar orðabókar má leita í ríflega 100.000 leitarhæfum uppflettiorðum. Glögg uppsetning greiðir aðgang að lýsingu orðanna og finna má fjölbreyttar og skýrar leiðbeiningar um málsnið og málnotkun. Íslensk orðabók á tölvutæku formi býður sömuleiðis upp á fjölda leiða til að fletta upp orðum, orðhlutum, merkingum o.fl.

Íslensk orðabók byggir á langri hefð. Menningar­sjóður ákvað árið 1957 að hefja vinnu við íslenska orðabók og hún leit dagsins ljós árið 1963 í ritstjórn Árna Böðvarssonar. Önnur útgáfa kom út 1983 og sú þriðja, nú í ritstjórn Marðar Árnasonar, árið 2002. Þriðja útgáfa var mikið aukin og endurbætt og á hennar grunni kom út fjórða útgáfa árið 2007 með allnokkrum viðbótum og leiðréttingum.

Sú gerð Íslenskrar orðabókar sem birtist á snara.is er samhljóða 5. útgáfu frá 2010 en er uppfærð eftir atvikum.

Uppfærslur:
26. september 2019, m. styrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta

Miðstöð íslenskra bókmennta

© Miðeind ehf., Reykjavík.

Öll réttindi áskilin.

Þetta útgáfuverk hefur notið styrkja úr Lýðveldissjóði, Málræktarsjóði, Menningarsjóði og frá Miðstöð íslenskra bókmennta.

Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.

Formáli

Um þriðju útgáfu Íslenskrar orðabókar

Ritstjóri: Mörður Árnason

Ritstjórn og helstu samverkamenn: Halldóra Jónsdóttir, Laufey Leifsdóttir, Þórdís Úlfarsdóttir, Aðalsteinn Davíðsson, Kristín Bjarnadóttir (Orðabók Háskólans)

Ritstjóri fyrstu og annarrar útgáfu: Árni Böðvarsson

Orðabók lifandi tungumáls er aldrei búin, því að málið breytist rétt eins og samfélagið sem notar það. Kjarni orðaforðans er vissulega stöðugur en það er eðli tungumáls að vera á hreyfingu og í endursköpun með framþróun í verktækni, nýjum hugmyndastraumum og breyttri heimssýn. Afstaða málsamfélagsins til þess sem telst gott og vont í máli er heldur ekki söm frá degi til dags og það breytist með kynslóðunum hvað þykir fornlegt eða gamaldags. Þessi sannindi eru augljós á okkar hröðu öld, tímum þekkingarsamfélags og hnattvæðingar. Í almennum orðabókum þarf einnig að endurskoða mál frá liðnum tímum og orðfæri tengt horfnum atvinnuháttum í ljósi nýrra rannsókna.

Hérlendis hefur það verklag um of tíðkast við útgáfu orðabóka að langt hlé verður á störfum eftir sérhvert unnið afrek, og þegar ýtt er úr vör á ný eru nauðsynlegar endurbætur orðnar umfangsmikið verk og seinunnið. Þetta á meðal annars við um Íslenska orðabók. Frá fyrstu útgáfu árið 1963 til annarrar liðu tuttugu ár. Það var einkar bagalegt vegna þess að ritstjóranum gafst í upphafi ekki ráðrúm til að ganga frá bókinni eins og hann hefði kosið. Við aðra útgáfu bókarinnar árið 1983 var því öðrum þræði verið að ljúka við frumútgáfuna, þannig að ekki gafst nægilegt svigrúm til eiginlegrar endurskoðunar að því sinni. Frá annarri útgáfu til hinnar þriðju eru svo liðin nítján ár.

Þegar hafist var handa við þessa útgáfu var ákveðið að stefna ekki að gagngerri heildarendurskoðun í einum áfanga. Slíkt verk hefði tekið alltof langan tíma. Fýsilegra var talið að sinna vel afmörkuðum verkþáttum og endurskipulagningu á tilteknum sviðum bókarinnar, stefna að næstu útgáfu tiltölulega fljótt og treysta á umburðarlyndi lesenda um það sem upp á kynni að vanta.

Tölvutæknin gerir orðabókarmönnum kleift að vinna með allt öðrum hætti en áður þar sem ‘bókin’ er nú geymd sem stafrænt gagnasafn í sérstöku forriti með margvíslegum leitar- og flokkunarkostum. Á okkar tímum er líka hægt að gefa út orðabók með tvennum hætti, sem hefðbundna bók og á tölvutæku formi. Tæknilegar aðstæður hafa því skapast til að vinna við orðabækur í samfellu þannig að notendur geti gengið að nýrri útgáfu eða gerð á fárra ára fresti. Vonandi skapast einnig til frambúðar markaðslegar og pólitískar aðstæður til þessháttar vinnubragða við helstu orðabækur okkar og hjálpargögn. Á þennan hátt getur sígilt verk á borð við þessa bók gengið í endurnýjun lífdaga í mörgum skrefum og lagað sig að samtíðinni í hvert skipti. Von okkar er sú að Íslensk orðabók verði í framtíðinni heildarheiti verks sem er í stöðugri vinnslu og elur sífellt af sér nýja og betri orðabók fyrir fólk og samfélag.


Þegar ákveðið var að gefa út Íslenska orðabók á vegum Menningarsjóðs árið 1957 voru aðeins liðin þrettán ár frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Ekki er fjarri lagi að líta á frumútgáfuna sem einn af landvinningum sjálfstæðisbaráttunnar: Hér var fyrsta íslensk-íslenska orðabókin. Að baki útgáfunni lá sá metnaður að Íslensk orðabók yrði bæði þarfur þjónn og traustur lærimeistari, að hún gæti orðið leiðarvísir um nútímann á móðurmálinu og skilaði jafnframt fornri arfleifð til nýrra kynslóða. Þann metnað tökum við í arf frá Árna Böðvarssyni ritstjóra og samverkamönnum hans.

Segja má að frumherjarnir hafi sett sér þríþætt markmið. Í fyrsta lagi var nútímamál sett í öndvegi en þess gætt um leið að sýn gæfist um allar aldir málsögunnar. Þessi sögulega áhersla er í samræmi við þau sérkenni íslenskrar tungu að engin skörp skil eru í sögu hennar og orðaforðinn er samfelld heild frá elstu tímum til okkar daga. Í öðru lagi fer í bókinni saman lýsing þess máls sem talað er daglega við allar aðstæður og leiðsögn frá sjónarhóli málræktar og viðurkenndrar málvenju. Í þriðja lagi er í bókinni gefinn sérstakur gaumur að þeim þáttum sem einkum hafa mótað tunguna eða skapað samfélaginu sérstöðu fyrr og síðar, bæði að fornum atvinnuháttum og norrænni goðafræði svo dæmi séu nefnd. Þar er einnig leitast við að skýra almennt og fræðilegt orðfæri um landið og náttúruna. Hylli bókarinnar með þjóðinni sýnir vel að þeir Árni völdu hér rétta leið sem engin ástæða er til að víkja af.


© Miðeind ehf., Reykjavík. Öll réttindi áskilin.

Orðabækur og uppflettirit
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning