
Íslensk samheitaorðabók kom fyrst út 1985 og hefur verið ómetanlegt hjálpargagn þeim sem vilja skrifa og tala auðuga og blæbrigðaríka íslensku. Bókin hefur nú verið endurskoðuð og færð í nýjan búning, en þessi útgáfa kom út í ágúst 2012 og hlaut strax góðar viðtökur. Hér má fletta upp tugþúsundum orða og orðasambanda og finna önnur sömu eða svipaðrar merkingar sem hæfa mismunandi stíl og tilefnum. Uppflettiorð eru nú um 48.000 og leitarorð um 67.000.
Ritstjóri er Svavar Sigmundsson, málfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands.
© Styrktarsjóður Þórberg Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur
1. útgáfa 1985
2. útgáfa 1988
3. útgáfa 2012
Vefútgáfa frá 1. desember 2012
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefenda.
Stjórn Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur er það mikið ánægjuefni, að nú er fyrsta verkefni sjóðsins komið í höfn, þ.e. útgáfa íslenskrar samheitaorðabókar.
Reykjavík, 15. okt. 1985
Fyrir hönd stjórnar Styrktarsjóðs Þórbergs
Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur,
Jón Aðalsteinn Jónsson formaður.
Undirbúningur að samningu samheitabókarinnar hófst síðla sumars 1974, og vann undirritaður að efnissöfnun í hjáverkum með öðrum störfum fram til ársloka 1979.
Um veturnætur 1985
Svavar Sigmundsson
Texti frumútgáfu er að mestu óbreyttur í þessari útgáfu. Leiðréttar hafa verið prentvillur og ýmis lýti í prenti, og hefur Jóhannes Halldórsson cand. mag. lesið bókina alla með tilliti til þess.
Um sumarmál 1988
Svavar Sigmundsson
Í formála ritstjóra 1. útgáfu Íslenskrar samheitaorðabókar sem út kom 1985 var tekið fram að ætlunin væri að hún yrði endurskoðuð svo fljótt sem auðið væri.
Í mars 2012
Svavar Sigmundsson
| Andh: | andheiti |
| ao | atviksorð |
| bh | boðháttur |
| e-a | einhverja, einhverra |
| e-ð | eitthvað |
| ef | eignarfall |
| e-i | einhverri |
| e-m | einhverjum |
| e-n | einhvern |
| e-r | einhver |
| e-ra | einhverra |
| e-s | einhvers |
| est | efstastig |
| e-t | eitthvert |
| e-u | einhverju |
| fs | forsetning |
| ft | fleirtala |
| gr | greinir |
| h | hvorugkynsnafnorð, hvorugkyn |
| k | karlkynsnafnorð, karlkyn |
| kv | kvenkynsnafnorð, kvenkyn |
| l | lýsingarorð |
| lh | lýsingarháttur |
| m | með |
| mm | miðmynd |
| mst | miðstig |
| nh | nafnháttur |
| nt | nútíð |
| ób | óbeygjanlegt |
| óp | ópersónulegt |
| so | sagnorð |
| vh | viðtengingarháttur |
| þf | þolfall |
| þgf | þágufall |
| þt | þátíð |