
Spænska er móðurmál um 360 milljóna manna um allan heim. Hún er eitt útbreiddasta tungumál veraldar og opnar dyr að stórum heimi menningar, viðskipta og þekkingar. Spænska hefur á síðari árum notið sívaxandi vinsælda í íslenskum skólum.
Íslensk-spænsk orðabók hentar jafn byrjendum sem lengra komnum í spænskunámi og þeim sem ferðast til spænskumælandi landa eða eiga þar viðskipti. Orðabókin er unnin í samstarfi Háskólans í Reykjavík og Forlagsins.
Um 27.000 uppflettiorð
Ríflega 13.000 orðasambönd og máldæmi
Greinargóðar upplýsingar um málfræði og málnotkun
Ómissandi við nám og störf
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefenda.
Bók þessi er tileinkuð minningu Margrétar Björgólfsdóttur (1955–1989). Orðabókin hefði aldrei orðið að veruleika ef ekki hefðu farið saman rausnarlegir styrkir úr Minningarsjóði Margrétar og styrkur frá menntamálaráðuneytinu sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, stóð fyrir. Þannig unnu einkasjóður og opinber aðili saman að því að tryggja Íslendingum og spænskumælandi fólki öflugt verkfæri fyrir samskipti sín. Traustið sem minningarsjóður Margrétar og menntamálaráðherra sýndu okkur, höfundum bókarinnar, verður aldrei nógsamlega þakkað. Sama er að segja um fjárhagslegan stuðning Friðriks Steins Kristjánssonar, ræðismanns Spánar á Íslandi, Útflutningsráðs og sendiráðs Spánar í Noregi. Háskólinn í Reykjavík á þakkir skildar fyrir að hýsa verkefnið og hlúa að því í alla staði. Orðabókin er gott dæmi um einstök og öflug tengsl skólans við íslenskt atvinnulíf. Samstarf starfsmanna orðabókarinnar við Forlagið hefur einnig verið framúrskarandi.
Að öllum öðrum ólöstuðum ber sérstaklega að þakka Guðrúnu H. Tulinius, Sigrúnu Á. Eiríksdóttur og Teodoro Manrique Antón fyrir óeigingjarnt starf við gerð orðabókarinnar. Eljusemi þeirra, vandvirkni og samheldni er okkur öllum til eftirbreytni. Því skal haldið til haga að Sigrún Á. Eiríksdóttir hélt utan um alla vinnu bókarinnar frá upphafi til enda. Sömuleiðis eiga Viola Miglio, Sol Alvarez og Ragnheiður Kristinsdóttir þakkir skildar fyrir sitt framlag til þessarar orðabókar. Síðastan en ekki sístan ber að nefna Kristin R. Ólafsson sem kom í veg fyrir að villur rötuðu á prent, auk þess sem hann bætti orðabókina allverulega með mörgum góðum tillögum.
Hafist var handa við gerð Íslensk-spænskrar orðabókar árið 2007 og nú, fjórum árum síðar, lítur hún dagsins ljós. Má segja þessu verki til hróss að tíma- og fjárhagsáætlun stóðust.
Ritstjórn bókarinnar skipuðu Guðrún H. Tulinius, Margrét Jónsdóttir, Sigrún Á. Eiríksdóttir, Viola Miglio og Teo Manrique en auk þeirra komu að verkinu Laufey Leifsdóttir og Marinó Njálsson fyrir hönd Forlagsins. Orðabókin var unnin í Lexu, orðabókaforriti Forlagsins.
Í bókinni er góður orðaforði úr daglegu nútímamáli og að auki var lögð sérstök áhersla á sértækan orðaforða af ýmsu tagi, t.d. orðaforða tengdan ferðamennsku, sjávarútvegi, heilsugæslu og menntun, og sérfræðiorð fræðigreina á borð við viðskipti og hagfræði, lögfræði, upplýsingatækni, grasa- og dýrafræði o.fl. rötuðu líka inn í bókina. Spánn og sú spænska sem þar er töluð er í meginatriðum lögð til grundvallar en einnig má finna töluverðan fjölda orðskýringa frá öðrum spænskumælandi löndum.
Þessi orðabók er ætluð nemendum á mismunandi skólastigum sem og öllum öðrum áhugamönnum um spænska tungu. Samskipti Íslendinga við hinn stóra spænskumælandi heim hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum og lengi hefur verið brýn þörf fyrir orðabók sem þessa.