Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðing milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
  1. Snara
  2. Orðabækur og uppflettirit
  3. Íslenska alfræðiorðabókin

Íslenska alfræðiorðabókin

Íslenska alfræðiorðabókin

Íslenska alfræðiorðabókin

Íslenska alfræði­orða­bókin stuðlar að verndun íslensks máls og er ómetan­legt hjálpar­gagn hverjum þeim sem rita vill á íslensku um hugðarefni sín.

Íslenska alfræðiorðabókin færir notendum sínum fróðleik á sviði vísinda, tækni og lista og veitir upplýsingar um menn og málefni fortíðar og nútíðar, jafnt á innlendum sem erlendum vettvangi.

Íslenska alfræðiorðabókin hefur að geyma um 37 000 uppflettiorð og lykilorð.

Við gerð Íslensku alfræðiorðabókarinnar var leitað til á annað hundrað sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum til að gera verkið sem áreiðanlegast. Auk þess unnu í ritstjórn allt að 15 manns í rúm þrjú ár.

Það er ósk útgefanda að allir Íslendingar geti notið Íslensku alfræðiorðabókarinnar í starfi, námi og leik, sér til gagns, gleði og þroska.

Íslenska alfræðiorðabókin er byggð á Fakta, Gyldendals etbinds leksikon, 1. útgáfu 1988, © Gyldendalske Boghandel, Nordisk Forlag A/S, 1988.
Fyrsta prentun 1990
Önnur prentun 1992
Þriðja prentun 2000
Vefútgáfa frá árinu 2011

©1990, 1992 Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
©2000 Bókaútgáfan Örn og Örlygur ehf.

Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.

Formáli

Íslenska alfræðiorðabókin er í þremur bindum með um 35 000 uppflettiorð og um 2000 lykilorð í stafrófsröð. Einnig eru í bókinni um 4500 ljósmyndir, teikningar, kort og töflur. Bókin er öll litprentuð.

Íslenska alfræðiorðabókin er byggð á dönsku alfræðiorðabókinni FAKTA sem kom út árið 1988 hjá bókaforlaginu Gyldendalske Boghandel, Nordisk Forlag A/S. Handritið að dönsku bókinni var flokkað í 241 efnisflokk samkvæmt Dewey flokkunarkerfinu og unnið í gagnasafni á tölvu. Íslenska handritið var unnið með sama hætti. Fengnir voru sérfræðingar á hverju sviði til að þýða, staðfæra og endurskoða efnið, fella út sérdanskt efni og semja samsvarandi íslenskar skýringar. Þannig bættust fjölmörg ný uppflettiorð við bókina, auk þess sem aukið var töluvert við flestar þær skýringar sem voru í danska handritinu. Yfirumsjón með verkinu annaðist fastráðin ritstjórn.

Alfræðiorðabókin er ætluð til almennra nota jafnt í námi, starfi og leik og í henni er reynt að gera flestum sviðum mannlegrar þekkingar skil í stuttum og hnitmiðuðum skýringum. Oft er vísað beint frá einu uppflettiorði til annars þar sem skýringuna er að finna og er þá ýmist um samheiti að ræða eða að orðinu eru gerð skil í skýringartexta þess uppflettiorðs sem vísað er í. Ef ástæða þykir til er vísað úr einum skýringartexta í annan til frekari glöggvunar og ennfremur í myndasíður, einstakar myndir, kort og töflur. Til að auðvelda notendum bókarinnar að finna sjaldgæf orð og nýyrði var gripið til þess ráðs að birta samsvarandi orð (lykilorð) sem notuð eru í öðrum málum, aðallega dönsku og ensku, í hliðardálki og vísa þaðan í íslensku orðin.

Bókin er ríkulega myndskreytt og myndirnar tengjast oft fleiri en einni skýringu. Litmyndir fylgja einkum skýringum í listum, líffræði og landafræði. Litmyndasíður eru m.a. af þjóðfánum og mannslíkamanum og ennfremur eru um 800 landakort, sögukort og sérkort í bókinni. Skýringarmyndir eru fjölmargar og sumar þeirra sérstaklega gerðar fyrir íslensku útgáfuna.

Samfelld vinna við alfræðiorðabókina hófst í maí 1987 og ritstjórn var að mestu lokið 1. júní 1990 en reynt var að bæta inn nýjustu upplýsingum og tíunda helstu atburði uns prentun hófst í september 1990.

Við undirritaðar viljum þakka samstarfsfólki okkar fyrir einstaklega gott samstarf, ósérhlífni og dugnað meðan á vinnslu bókarinnar stóð. Einnig viljum við þakka sérfræðingum bókarinnar og öðrum sem veittu upplýsingar og ráðgjöf og lögðu með því sitt af mörkum til þess að íslensk alfræðiorðabók yrði að veruleika. Síðast en ekki síst þökkum við útgefandanum, Örlygi Hálfdanarsyni, sem ekkert hefur til sparað til að gera bókina sem best úr garði.

Dóra Hafsteinsdóttir     Sigríður Harðardóttir, 1990

Ritstjórn

Dóra Hafsteinsdóttir, ritstjóri
Sigríður Harðardóttir, ritstjóri

Aðalsteinn Eyþórsson, aðstoðarritstjóri
Hálfdan Ómar Hálfdanarson, aðstoðarritstjóri
Björn Þorsteinsson
Bryndís Vilbergsdóttir
Gísli Sigurðsson
Ingrid Markan
Sigmundur Einarsson
Svanhildur Óskarsdóttir
Þórunn Skaptadóttir

Myndaritstjórn

Sigmundur Einarsson, myndaritstjóri
Einar S. Arnalds

Um tíma störfuðu í ritstjórn þeir Helgi Ingólfsson og Þorsteinn V. Jónsson. Draumey Aradóttir vann við setningu o.fl., Ívar Gissurarson vann við myndaöflun og Jón Skaptason við umbrot. Einnig veitti Helgi Magnússon margvíslega aðstoð.

Sérfræðingar

Adolf Friðriksson fornleifafræði
Aðalsteinn Eyþórsson málfræði
Aðalsteinn Ingólfsson myndlist
Álfheiður Kjartansdóttir málfræði
Arndís Árnadóttir myndlist
Árni Bergmann bókmenntir
Árni Björnsson þjóðfræði
Árni Ibsen leiklist
Árni Indriðason sagnfræði
Ásgeir Tómasson tónlist
Ástráður Eysteinsson bókmenntir
Baldur Þorsteinsson líffræði
Bergþór Jóhannsson líffræði
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir jarðeðlisfræði
Birna Arnbjörnsdóttir málfræði
Björn Þorsteinsson kvikmyndir
Bragi Guðmundsson verkfræði
Dagný Heiðdal þjóðfræði
Dagur Þorleifsson sagnfræði, trúarbrögð
Edda Óskarsdóttir bókmenntir
Eggert Lárusson landafræði
Eggert Ólafsson tölvunarfræði
Einar Júlíusson stjörnufræði, eðlisfræði
Einar Sigurbjörnsson guðfræði
Eiríkur Jensson líffræði
Eiríkur Þorláksson myndlist
Elísabet Hákonardóttir myndlist
Erling Ólafsson líffræði
Eysteinn Þorvaldsson bókmenntir
Fríður Ólafsdóttir sagnfræði
Gísli Pálsson mannfræði
Gísli Sigurðsson bókmenntir
Guðjón Jóhannesson læknisfræði
Guðmundur Ingi Haraldsson landafræði
Guðný Jónasdóttir sagnfræði
Gunnar Jónsson líffræði
Gylfi Pálsson fiskveiðar
Hálfdan Ómar Hálfdanarson líffræði
Halldór Ármannsson efnafræði
Halldór Sverrisson líffræði
Hallgerður Gísladóttir matargerð
Heimir Hálfdanarson íþróttir
Helga Kress bókmenntir
Helga Þórarinsdóttir sagnfræði, matargerð
Helgi Ingólfsson sagnfræði
Hermann Ragnar Stefánsson samkvæmisdansar
Hrafnhildur Jónsdóttir bókmenntir
Hörður Kristinsson líffræði
Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræði, ljósmyndun
Ingrid Markan tónlist
Ingvi Þór Kormáksson tónlist
Jóhanna Jóhannesdóttir læknisfræði
Jón Eiríksson jarðfræði
Jón Þórarinsson tónlist
Jón D. Þorsteinsson verkfræði
Jónas Jónsson búvísindi
Jónína M. Guðnadóttir bókmenntir
Kirstín Þ. Flygenring viðskiptafræði
Kristín Bjarnadóttir listdans
Kristján Árnason bókmenntir
Leifur A. Símonarson jarðfræði
Magnfríður Júlíusdóttir landafræði
Magnús Bjarnason hermál
Ólafur Björnsson viðskiptafræði
Ólafur Gíslason myndlist
Ólafur Jensson verkfræði
Ólafur K. Nielsen líffræði
Óskar Ingimarsson líffræði
Óttar Ólafsson landafræði
Páll Bergþórsson veðurfræði
Páll V. Bjarnason byggingarlist, siglingar
Páll Skúlason lögfræði
Pétur P. Johnson flugmál
Ragnar Baldursson bókmenntir
Ragnar S. Ragnarsson sálfræði
Reynir Axelsson stærðfræði
Sigmundur Einarsson landafræði
Sigrún Á. Eiríksdóttir bókmenntir
Sigrún Eldjárn myndlist
Sigrún Klara Hannesdóttir bókasafnsfræði
Sigurður J. Grétarsson sálfræði
Sigurður Hróarsson bókmenntir
Sigurður Steinþórsson jarðfræði
Sigurjón Jóhannsson bókagerð
Sigurjón H. Ólafsson tannlæknisfræði
Sigurjón Rist vatnamælingar
Stefán Thors skipulagsfræði
Sveinn Einarsson bókmenntir
Takako Inaba Jónsson bókmenntir
Tryggvi Jakobsson landafræði
Valgerður Einarsdóttir bókmenntir
Vigdís Pálsdóttir hannyrðir
Þór Rúnar Þorsteinsson málmsmíði
Þóra Kristjánsdóttir myndlist
Þórarinn Guðmundsson eðlisfræði
Þorbjörn Karlsson verkfræði
Þórður Helgason bókmenntir
Þorsteinn Helgason sagnfræði
Þorsteinn Hilmarsson heimspeki
Þorsteinn Magnússon stjórnmálafræði
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræði
Þorsteinn Þórhallsson sagnfræði
Þuríður J. Kristjánsdóttir skólamál, sálfræði
Þuríður Þorbjarnardóttir líffræði
Örn Daníel Jónsson félagsfræði

Eftirtaldir lásu yfir hluta handrits: Ágúst Guðmundsson, Baldur Hafstað, Baldvin Jónsson, Björn Friðfinnsson, Einar Gunnar Pétursson, Eiríkur Rögnvaldsson, Eyþór Einarsson, Gils Guðmundsson, Guðjón Ármann Eyjólfsson, Halldór Þorbjörnsson, Hannes Kr. Davíðsson, Janus Guðlaugsson, Jóhann Sigurjónsson, Jóhannes Kjarval, Jón O. Edwald, Jón Torfason, Jón Ögmundur Þormóðsson, Jörundur Svavarsson, Kristján Sæmundsson, Lúðvík Kristjánsson, Pétur H. Ármannsson, Pétur Sigurðsson, Runólfur Sigurðsson, Skúli Magnússon, Þórhallur Guttormsson, Þorsteinn Einarsson, Þorsteinn Sæmundsson, Örn Bjarnason, Örnólfur E. Rögnvaldsson, Örnólfur Thorlacius.

Ritstjórn og sérfræðingar þakka og þeim fjölmörgu er komu við sögu á ýmsum vinnslustigum bókarinnar en eru ekki nefndir hér.

Fylgt úr hlaði

Íslenska alfræðiorðabókin er hin fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Að útgáfunni hefur verið unnið frá 1985. Fyrstu tvö árin fóru í margs konar athuganir og leit að fyrirmyndum sem styðjast mætti við og leiddu að lokum til samnings við hið virta danska bókaútgáfufyrirtæki Gyldendalske Boghandel, Nordisk Forlag A/S, en það hefur langa og farsæla reynslu í útgáfu alfræðibóka af ýmsum gerðum, sem notið hafa mikilla vinsælda. Ein hin þekktasta þeirra er Gyldendals 2-binds leksikon sem kom fyrst út árið 1973. Samningurinn við Gyldendal var í því fólginn að mega gefa þetta verk út á íslensku með þeim breytingum sem séríslenskar aðstæður krefðust, og þar með rétti til þess að auka vægi íslenska hlutans að vild. Samningurinn var undirritaður í Reykjavík í desember 1986 og samkvæmt fyrstu áætlun var ráðgert að hin íslenska alfræðiorðabók kæmi út haustið 1988, en margt fer öðruvísi en ætlað er.

Strangar kröfur

Strax í upphafi voru settar strangar kröfur um að alfræðiorðabókin yrði íslensk í orðsins fyllstu merkingu. Ljóst var að mikið starf yrði í því fólgið að móta vandaðan og agaðan texta sem hafður yrði að fyrirmynd við skilgreiningu hugtaka í bókinni. Til þessa vandasama verks voru ráðnar sem ritstjórar þær Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir. Síðar var bætt við fleira starfsfólki eftir því sem verkið þróaðist. Hluti starfshópsins hafði unnið að gerð hinnar miklu Ensk-íslensku orðabókar, sem fyrirtækið gaf út árið 1984, og síðar að gerð fleiri orðabóka fyrirtækisins. Hin dýrmæta reynsla sem fengist hafði við störf að þeim bókum gerði hópnum kleift að fá á skömmum tíma heildarsýn yfir verkið og átta sig á eðli þess. Mér er það bæði ljúft og skylt að láta þess getið að ég hefi aldrei séð jafnsamhentan og samæfðan hóp leysa jafnkrefjandi andleg störf. Þar var valinn maður í hverju rúmi og sönn vinnugleði ríkjandi.

Hugsað á íslensku

Það er ekki ofmælt þegar sagt er að hér sé í fyrsta sinni verið að hugsa á íslensku á markvissan hátt um mjög margar greinar þekkingar og miðla vitneskju um þær ljóst og aðgengilega til lærðra og leikra. Gildir það raunar jafnt um þýðingu hins erlenda efnis sem frumsamningu íslenskra efnisþátta. Má gjarnan geta þess að samstarf útgáfunnar við vísinda- og fræðimenn, félög og stofnanir hefur blásið nýju lífi í rannsóknir og nýyrðasmíði á ýmsum sviðum.

Það orkaði ekki tvímælis að útgáfa bókarinnar hefði varanleg áhrif á almenna málnotkun og því skipti miklu að ekki yrði slakað á þeim kröfum sem gerðar væru til verksins frá upphafi. Á herðum útgáfunnar hvíldi því augljóslega sú ábyrgð að móta verkið í þeim anda að það stuðlaði að eðlilegri þróun íslenskrar tungu.

Það varð æ ljósara eftir því sem á verkið leið hversu mikilvægt það væri að laga hið erlenda efni að íslenskum aðstæðum, staðla heiti á hugtökum sem enn vantaði í íslensku, eða voru á víð og dreif og almenningi ekki kunn eða tiltæk. Þrátt fyrir mikla reynslu fyrirtækisins í útgáfu stórra og krefjandi verka var þáttur íslenskunnar stórlega vanmetinn þegar útgáfa alfræðiorðabókarinnar var ákveðin og áætlanir gerðar um vinnslutíma og útgáfukostnað. Án efa er þetta langdýrasta bókverk sem unnið hefur verið á Íslandi og drýgstur hluti kostnaðarins er kominn til vegna þess hve miklar kröfur voru gerðar frá upphafi til íslenska þáttarins.

Þess er vert að minnast að hjá frændþjóð okkar Svíum er hafin útgáfa alfræðibókar sem sænska ríkið styður með ríflegum lánum. Ástæðan fyrir stuðningi sænska ríkisins er sú að sænskir ráðamenn eru uggandi um framtíð sænskunnar vegna engilsaxneskra áhrifa. Þeir álíta það mjög mikilvægt að umrædd alfræðibók verði sænsk en ekki hálfsænsk vegna þeirra miklu áhrifa sem hún eigi eftir að hafa á þróun málsins þar í landi. Að mati þeirra spornar fátt fremur við ágengni enskunnar en raunverulega sænsk alfræðibók þar sem leitast er við að koma að sænskri hugsun og orðum.

Framtíð íslenskunnar

Undirritaður er ekki sá eini sem komið hefur auga á mikilvægi islenskrar alfræðiorðabókar fyrir framtíð íslenskunnar. Hinn landskunni skólamaður Steindór Steindórsson frá Hlöðum ritaði forystugrein um alfræðibækur í tímaritið Heima er best í september 1988 og vék orðum sínum sérstaklega að þessari bók, sem hann hafði þá kynnt sér að nokkru í handriti. Þar komst hann m.a. svo að orði: „Hún flytur staðreyndir í þúsundatali um þekkingu nútímans á vísindum, listum og um menn og málefni. En það sem mestu skiptir fyrir oss er, að þetta efni er túlkað fyrir oss á íslensku. Erlendar bækur af þessu tagi eru að vísu girnilegar til fróðleiks, en bæði flytja þær margt, sem oss skiptir lítilu máli, og hinn alþjóðlegi hluti þeirra er á erlendri tungu, sem óhjákvæmilega orkar á skilning vorn og veldur því, að oss hættir til að hugsa um og skýra hin fræðilegu atriði á einhvers konar hálfíslensku. Íslensk alfræðiorðabók er því ekki lítilsvert tæki til verndar tungu vorri, og ómetanlegt hjálpargagn til að hugsa og rita á íslensku um erlend og alþjóðleg efni, hvort heldur vera skal vísindi, þjóðfélagsmál, listir, eða eins og síra Jónas sagði, allt það, sem oss dettur í hug að kynna oss. Og þá má ekki gleyma öllum þeim séríslenska fróðleik, sem bókin kemur til með að flytja í stað þess efnis, sem numið er brott úr fyrirmyndinni. Það er ómetanlegt að hafa slíkt á einum stað. Af þessum sökum ber að fagna þessari bók, og því hefi ég gert alfræðibækur að umtalsefni í þessum greinarstúf.“

Menningarlegt sjálfstæði

Í bréfi sem Steindór ritaði mér um svipað leyti segir hann í niðurlagsorðum sínum: „Aldrei fyrr hefur verið til íslensk alfræðiorðabók, og mun slíkt fátítt meðal menningarþjóða. Útkoma slíkrar bókar er því menningarviðburður, einn þáttur af mörgum sem styrkja oss í baráttunni fyrir menningarlegu sjálfstæði, samtímis því að vera handhægt vinnutæki fyrir þúsundir manna. Því ber að fagna þessu framtaki.“

Útgáfuráð

Þegar hafist var handa um gerð þessarar alfræðiorðabókar var engin almenn hefð fyrir í landinu um vinnu að slíku verki. Í upphafi var skipað sérstakt útgáfuráð sem skyldi funda reglulega með ritstjórn alfræðiorðabókarinnar og vera henni til aðstoðar.

Það kom hins vegar fljótlega í ljós að úrvinnsla alfræðiefnis er mjög flókin og vandamálin verður að leysa jafnóðum og þau koma upp. Útilokað hefði verið að bíða eftir fundum með útgáfuráði. Slíkt hefði orðið alltof þungt í vöfum. Útgáfuráðið hefði orðið að vera stöðugt til staðar ef þekking þess og reynsla átti að nýtast, en slíkt kom að sjálfsögðu ekki til greina. Það varð því ekkert af framangreindum áformum um störf útgáfuráðs.

Í þessu sambandi er vert að minnast þess að hin breyttu vinnubrögð frá því sem í upphafi var fyrirhugað lögðu enn meiri ábyrgð á herðar ritstjórnar bókarinnar, ábyrgð sem hún axlaði með prýði. Hún lyfti í rauninni grettistaki.

Svo sem fram kemur í formála ritstjóranna var leitað til liðlega 100 sérfræðinga til þess að þýða hið erlenda efni, staðfæra það og semja íslenskt efni þar sem við átti. Allt er þetta hið hæfasta fólk sem vann verk sitt af miklum dugnaði. Það var svo hlutverk ritstjórnarinnar að taka við hinu mikilvæga framlagi sérfræðinganna, samræma það innbyrðis og breyta eða umsemja á stundum, allt eftir því hvers eðlis málið var. Þetta eru hin eðlilegu vinnubrögð, því að bók af þessu tagi kallar á mikla yfirsýn, samræmd vinnubrögð og samstillt átak fjölda manna. Þá yfirsýn og samstillingu varð ritstjórnin að hafa og axla þá ábyrgð sem því fylgdi.

Lagt í dóm framtíðarinnar

Það er rík ástæða til þess að þakka sérfræðingum og ritstjórn alfræðiorðabókarinnar fyrir hin mjög svo mikilvægu störf að þessari bók. Framlag þeirra til íslenskrar menningar er erfitt að meta að svo stöddu. Það bíður framtíðarinnar.

Að loknu svo löngu máli er e.t.v. rétt að draga saman það helsta sem útgáfu alfræðiorðabókarinnar varðar.

1. Alfræðiorðabókin er fyrsta íslenska bók sinnar tegundar og brautryðjendaverk. Hún er samin fyrir Íslendinga og veitir upplýsingar á íslensku jafnt um íslenskt efni sem alþjóðlegt. Með henni er lagður grunnur að íslenskri alfræðibókagerð.

2. Hinir færustu sérfræðingar í hverju fagi hafa lagt til efni í bókina.

3. Útgáfa bókarinnar á eftir að hafa veruleg áhrif á þróun íslenskunnar og almenna málnotkun.

4. Alfræðiorðabókin stuðlar að samræmingu í notkun íslenskra fræðiorða og á rithætti, t.d. mannanafna og örnefna.

5. Bókin kemur nýyrðum á framfæri. Höfð hefur verið samvinna við orðanefndir og nýjar verið stofnaðar í sambandi við vinnslu hennar.

6. Hin öra þróun í tækni og vísindum veldur því að endurskoða verður bókina reglulega og því má ætla að hún verði grunnur til langframa að fræðiorðanotkun almennings og geri fólki kleift að fylgjast með á sem flestum sviðum.

7. Bókin verður aðgengileg heimild um íslensk fræðiorð og auðveldar því gerð kennslubóka og stuðlar að samræmingu á orðanotkun í þeim, auk þess sem þær verða fljótunnari og þar með ódýrari.

Ég vil að lokum ítreka þakkir mínar til allra sem unnið hafa við bókina og þeirra fjölmörgu sem lagt hafa málinu lið á einn eða annan hátt. Sérstaklega vil ég nefna forráðamenn Iðnþróunarsjóðs en án skilnings þeirra á mikilvægi málsins hefði bókin tæpast litið dagsins ljós.

Örlygur Hálfdanarson, 1990

Orðabækur og uppflettirit
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning