
Hér er um að ræða veigamikið verk, hið fyrsta sinnar tegundar, sambærilegt við Íslensk-ítalska orðabók sama höfundar sem út kom árið 1994, en þó með töluvert fleiri uppflettiorðum og enn ítarlegri. Megináhersla er lögð á almennt nútímamál, jafnt ritmál sem daglegt mál, og ýmiss konar sérfræðimáli eru einnig gerð skil, ekki síst því er lýtur að ýmsum listgreinum, svo sem tónlist og myndlist. Í bókinni eru um þrjátíu og fimm þúsund uppflettiorð. Hvert þeirra er merkingargreint, þýtt á íslensku og notkun þess sýnd með dæmum. Einnig eru skráðar helstu málfræðiupplýsingar.
©Paolo Maria Turchi, 1999
Iðunn, Reykjavík
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.