
Í Merg málsins er fjallað um liðlega 9000 föst orðasambönd, einkum þau sem höfundur nefnir orðatiltæki. Fyrsta útgáfa bókarinnar var endurskoðuð frá grunni, jafnt dæmasafnið sem skýringarbálkurinn. Í mörgum tilvikum er teflt fram nýjum skýringum eða leitast við að auka eldri skýringar og skerpa þær og lætur nærri að nýtt efni nemi um þriðjungi bókarinnar. Notkun, uppruna og sögu orðatiltækja er lýst með vönduðum skýringum og fjölda dæma úr nútímamáli og eldri heimildum.
Mergur málsins er sannkallað þrekvirki á sínu sviði. Vandfundið er annað eins safn dæma um fjölbreytni tungumálsins og umhverfið sem það er sprottið úr.
Jón Friðjónsson er prófessor í íslensku við Háskóla Íslands. Fyrri útgáfa þessarar bókar hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin þegar hún kom út árið 1993.
1. útgáfa 1993
2. útgáfa 2006
Vefútgáfa frá desember 2012
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefenda.
Nú eru liðin þrettán ár síðan Mergur málsins kom út í fyrstu útgáfu. Frá þeim tíma hef ég unnið nokkuð stöðugt að nýrri, endurbættri og aukinni útgáfu. Það var þó ekki fyrr en fyrir fjórum árum að ég hófst handa með kerfisbundnum hætti við það verk. Við þá útgáfu sem hér birtist hef ég leitast við að halda sniði fyrstu útgáfu en að öðru leyti eru breytingarnar svo margþættar að í raun er um nýtt verk að ræða. Skal nú leitast við að gera grein fyrir þeim.
Í fyrsta lagi hef ég viðað að mér miklu efni á þeim tíma sem liðinn er frá fyrstu útgáfu. Annars vegar hef ég safnað nýju efni og hins vegar hef ég farið aftur, nákvæmar og betur, yfir ýmis þau rit er ég hafði orðtekið. Ástæða þessa er sú að lengi er von á einum, reynslan sýnir að orðtökumönnum sést ávallt yfir, ekki síst dæmi er varða málfræði og málbeitingu. Einnig lagði ég aukna áherslu á að orðtaka traustar heimildir. Af þessari ástæðu las ég t.d. vandlegaKonungs skuggsjá og Alexanders sögu og fjölmörg önnur rit í stafréttum útgáfum. Eins og áður hef ég tilgreint öll fornmálsdæmi og dæmi úr síðari alda máli með nútíma stafsetningu en haldið orðmyndum óbreyttum
Í öðru lagi eru íslensku biblíumáli gerð betri skil í þessari útgáfu en hinni fyrri og hef ég nýtt mér ýmislegt úr riti mínu Rætur málsins. Þangað hef ég sótt allmörg dæmi er renna stoðum undir fyllri og betri skýringar.
Í þriðja lagi ber þess að geta að ég hef um margra ára bil leitast við að draga saman og byggja upp orðtiltækjaflokka á grundvelli ákveðinna vísinda og iðnaða. Þar á maður helst við hugsun Jóns Ólafssonar úr Grunnavík sem kom fram þeirri skoðun sinni að orðskýring ætti að vera byggð á vísindalegum grundvelli. Þegar til lengdar lætur er það verklag sem fer best af stað.