
Orð að sönnu er efnismikið yfirlitsrit um íslenska málshætti og orðskviði, allt frá elstu heimildum til nútímans; stærsta málsháttasafn sem komið hefur út hér á landi. Í ritinu er fjallað um þúsundir málshátta, gerð nákvæm grein fyrir uppruna þeirra, elstu dæmum, afbrigðum og erlendum samsvörunum, sem og merkingu og notkun eftir því sem kostur er.
Jón G. Friðjónsson prófessor hefur um langt árabil viðað að sér gríðarlegum fróðleik um málshætti og miðlar því efni hér til lesenda. Meðal fyrri rita Jóns er Mergur málsins, stórt uppsláttarrit um íslensk orðatiltæki, en fyrir þá bók hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin 1993.
Íslenskir málshættir eru fjársjóður kynslóðanna, vitnisburður um speki og kunnáttu sem hefur fylgt þjóðinni frá fyrstu tíð. Lengi hefur vantað ýtarlegt rit þar sem leitast er við að skýra merkingu málshátta og varpa ljósi á breytingar sem hafa orðið á þeim í aldanna rás. Orð að sönnu er í senn hagnýtt uppsláttarrit fyrir allt áhugafólk um íslenskt mál og vandað fræðirit sem gagnast þeim sem vilja rannsaka uppruna og sögu íslenskra málshátta.
• Um 12.500 íslenskir málshættir
• Merking, aldur, uppruni, notkun
• Hagnýtt uppsláttarrit, vandað fræðirit
© Jón G. Friðjónsson 2014, Miðeind ehf. · Reykjavík · 2025, Öll réttindi áskilin.
Útgáfa bókarinnar er styrkt af: Miðstöð íslenskra bókmennta
Forlagsritstjórn: Sigríður Rögnvaldsdóttir
Gagnavinnsla: Laufey Leifsdóttir og Marinó Njálsson
Kápa: Ragnar Helgi Ólafsson
Vefútgáfa á Snöru frá janúar 2019
Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefanda.
Stofn þessa verks er eigið málsháttasafn sem ég hef safnað til og unnið að ásamt öðru í hartnær fjörutíu ár. Um langt skeið hef ég safnað efni úr þeim verkum sem ég hef lesið, jafnt úr fornu máli sem síðari alda máli. Samtímis því sem ég safnaði efni í rit mitt, Merg málsins (1993 og 2006), safnaði ég ýmsu öðru á skipulegan hátt, m.a. málsháttum. Ég tel mig hafa orðtekið með þessu lagi alla forna texta í óbundnu máli frá því fyrir 1500 og úr síðari alda máli safnaði ég efni á sama veg auk þess sem ég las í hörgul tvö til þrjú verk frá hverri öld. Þennan hátt hafði ég á til að fylla myndina, gera úrtakið trúverðugra, en einnig til að sjá notkun málshátta í samhengi og greina merkingu þeirra.
Efnis til verksins var að mestu leyti aflað úr elstu heimildum og jafnan var leitast við að orðtaka verk í traustum, fræðilegum útgáfum. Stundum voru þó aðrar útgáfur hafðar til hliðsjónar eða notaðar í stað fræðilegu útgáfanna ef þær voru ekki tiltækar eða aðgengilegar.