Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðing milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
  1. Snara
  2. Orðabækur og uppflettirit
  3. Raftækniorðasafn

Raftækniorðasafn

Raftækniorðasafn

Raftækniorðasafn

Raftækniorðasafn er víðtækt uppflettirit með íðorðum yfir hugtök úr rafmagnsfræði og skyldum greinum, orkumálum, fjarskiptum o.s.frv. Íðorðin eru byggð á skilgreiningum hugtaka sem í flestum tilvikum eru ígildi alþjóðlegra staðla. Á veffanginu www.electropedia.org má finna meirihluta íðorðanna á fjölmörgum erlendum tungumálum ásamt skilgreiningum þeirra á ensku og frönsku.

Raftækniorðasafnið er unnið af Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga sem starfað hefur samfellt frá stofnun hennar í maí 1941. Útgefnar orðabækur nefndarinnar eru orðnar 17 talsins, þar af 13 í ritröðinni Raftækniorðasafn, eða nánar sem hér segir:

Orðasafn II. Rafmagnsfræði. Danskt-íslenzkt bráðabirgða orðasafn1952
Raftækni- og ljósorðasafn1965
Raftækni- og ljósorðasafn, 2. bindi1973
Raftækniorðasafn 1. Þráðlaus fjarskipti1988
Raftækniorðasafn 2. Ritsími og talsími1989
Raftækniorðasafn 3. Vinnsla, flutningur og dreifing raforku1990
Raftækniorðasafn 4. Rafeindalampar og aflrafeindatækni1991
Raftækniorðasafn 5. Rofbúnaður, stýribúnaður og vernd raforkukerfa1996
Íslenskt-enskt, enskt-íslenskt raftækniorðasafn1997
Raftækniorðasafn 6. Mælitækni, mælispennar og gjaldskrár raforku1998
Raftækniorðasafn 7. Strengir, línur, einangrarar og orkumál2000
Raftækniorðasafn 8. Rafvélar, aflspennar, spanöld og aflþéttar2001
Raftækniorðasafn 9. Ljóstækni2001
Raftækniorðasafn 10. Sjálfvirk stýring2002
Raftækniorðasafn 11. Fjarskiptanet, skiptitækni og merkjagjöf2003
Raftækniorðasafn 12. Ljósleiðara- og geimfjarskipti2004
Raftækniorðasafn 13. Loftnet og bylgjuútbreiðsla2008

Ýmsar þessara bóka eru enn fáanlegar í Bóksölu stúdenta. Einnig er hægt að hafa samband við Ívar Þorsteinsson, ithor@simnet.is

Vefbók þessa má eigi afrita með neinum hætti, svo sem með rafrænum hætti, ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis höfunda og útgefenda.

Saga

Saga orðanefndar rafmagnsverkfræðinga um 75 ára skeið

Rafmagnsverkfræðingar í Verkfræðingafélagi Íslands voru aðeins 13 hér á landi, þegar þeir komu saman til að stofna eigin deild, fyrstu sérdeildina innan Verkfræðingafélagsins, 7. febrúar 1941. Fyrsti aðalfundur hinar nýstofnuðu deildar var 16. maí sama ár. Að loknum aðalfundarstörfum og kosningu stjórnar var fyrsta mál á dagskrá fundarins framsögn um „orðanefndarmálið“, sem svo var nefnt.

Jakob Gíslason rafmagnseftirlitsstjóri og nýkjörinn formaður deildarinnar benti í framsögn sinni á „nauðsyn þess að safna saman þeim orðum, sem til voru í rafmagnsfræðinni“. Jakob minnti á skrárnar yfir raffræðiorð, sem birtust í Tímariti VFÍ 1920 og 1923, og einnig á grein eftir Gunnlaug Briem um útvarpsstöðvar. Steingrímur Jónsson tók til máls og gat þess, „að fyrstu tildrögin til íðorðasöfnunar á vegum verkfræðinga væri erindi Björns Bjarnasonar frá Viðfirði á fundi í VFÍ“. Björn hélt erindi sitt seint á árinu 1918, ekki löngu eftir stofnun Verkfræðingafélagsins.

Fáum mánuðum eftir að Björn hélt fyrirlestur sinn stofnuðu verkfræðingar orðanefnd. Guðmundur Finnbogason og Sigurður Nordal voru lífið og sálin í þessari nefnd. Nefndin hélt 152 fundi á árunum 1919–1926, einn fund 1927 og að lokum einn fund 1933, þegar fjallað var um raftækniorð í Reglugerð um raforkuvirki. Nefndin kallaði sig sjálf Orðanefnd Verkfræðingafjelagsins.

Orðanefnd Verkfræðingafélagsins kom býsna víða við og hafði þá sérfróða menn sér til aðstoðar, eftir því sem við átti. Einn af ráðunautum orðanefndarinnar var Steingrímur Jónsson, rafmagnsstjóri, en fleiri rafmagnsverkfræðingar komu við sögu.

Fyrsta orðaskrá yfir íðorð úr rafmagnsfræði birtist í Tímariti VFÍ 1920, eins og áður segir. Fyrirsögn hennar er Nokkur heiti úr raffræðinni eftir orðanefnd Verkfræðingafjelagsins með aðstoð Steingríms Jónssonar og Guðmundar Hlíðdal. Árið 1923 birtist önnur skrá yfir rafmagnsorð í Tímariti VFÍ með sama heiti og hin fyrri en Guðmundar Hlíðdal var þó ekki getið sem aðstoðarmanns.

Í Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga eiga nú sæti eftirtaldir 6 menn sem flestir hafa tekið þátt í störfum hennar um langt árabil og allt upp í 47 ár:

Gunnar Ámundason
Ívar Þorsteinsson
Jón Þóroddur Jónsson
Ólafur Pálsson
Sigurður Briem, formaður nefndarinnar
Torfi Þórhallsson

Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, Ph.D. í íslenskri málfræði, hefur starfað með nefndinni undanfarin ár sem sérfræðingur og ráðgjafi um íslenskt mál.

Fundir nefndarinnar eru vikulega meirihluta ársins.

Orðabækur og uppflettirit
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning