Hvernig nota ég orðalistana?
Athugaðu að orðalistar eru aðeins í boði í frjálsri áskrift. Þú getur kynnt þér ólíkar áskriftarleiðir á áskriftarsíðunni okkar.
Orðalistarnir gera þér kleift að þýða ákveðin orð á ákveðinn hátt, svo þú fáir nákvæmari og áreiðanlegri þýðingar. Þú getur notað orðalista Miðeindar eða útbúið þína eigin með orðum sem þú vilt ekki að bjagist við þýðingu, eða orðalag sem þú vilt að þýðist á ákveðinn hátt.
Erlendur tekur tillit til listanna í þýðingarferlinu sem leiðir af sér nákvæmari og samræmdari þýðingar. Orðalistar geta innihaldið færslur milli hvaða mála sem er, en þegar orðalistinn er virkjaður við þýðingu eru aðeins þær færslur sem passa við þýðingarmálin nýttar. Sérstaklega gagnlegt getur verið að hlaða inn orðalistum í kringum raddblæ fyrirtækja, íðorðum á ákveðnu sérsviði eða örnefnum og öðrum sérheitum sem koma fyrir í umfjöllun.
Til þess að nota orðalistana við þýðingu þarf að fara undir Orðalistar í hægri hliðarstikunni og passa að hakað sé við listana sem á að nýta.
Þegar þú hefur fullvissað þig um að réttir orðalistar eru valdir og þú hefur valið mál til að þýða yfir á smellirðu á Þýða. Erlendur notar þá listana til að skorða þýðingarnar, svo lengi sem þeir innihalda færslur fyrir þýðingarmálin.