Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðingar milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
Áskriftarleiðir
Miðeind ehf.

Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

mideind.is[email protected]
Um MiðeindGreinar og pistlarStefna og tilgangurRannsóknir og tækni
ÁskriftNotkunarskilmálarPersónuverndHjálparmiðstöð

© 2026 Miðeind ehf.

Miðeind ehf.

MÁLSTAÐUR

PERSÓNUVERNDARSTEFNA

13. mars 2026

1. Inngangur

Þessi stefna ásamt notkunarskilmálum okkar („Skilmálarnir“) gildir um notkun þína á vefnum Málstað („Þjónustan“).

Upplýsingar okkar eru sem hér segir:

  • Fyrirtækisnafn: Miðeind ehf.

  • Netfang: [email protected]

  • Póstfang: Fiskislóð 31, 101 Reykjavík, Ísland.

2. Skilgreiningar

  • Samskiptagögn: Samskiptagögn samanstanda af upplýsingum sem notaðar eru til að hafa samband við einstakling, þar með talin netföng.

  • Efnisgögn: Efnisgögn vísa til allra upplýsinga og efnis sem notendur hlaða upp, birta eða senda á annan hátt í gegnum Þjónustuna, þar með talið en ekki takmarkað við texta, myndir, skrár, hljóðupptökur og samskipti. Efnisgögn eru mismunandi eftir því hvaða hluta Þjónustunnar þú velur að nota.

  • Fjárhagsgögn: Fjárhagsgögn ná yfir upplýsingar sem tengjast greiðslukortum einstaklinga og greiðslusögu.

  • Tækjagögn: Tækjagögn innihalda upplýsingar um tækið sem notað er til að nálgast Þjónustuna, svo sem IP-tölu, tegund tækis, stýrikerfi, tegund vafra og önnur greiningargögn.

  • Auðkennisgögn: Auðkennisgögn innihalda upplýsingar sem hægt er að nota til að bera kennsl á einstakling, svo sem fullt nafn, notandanafn og önnur álíka einkenni.

  • Staðsetningargögn: Staðsetningargögn fela í sér upplýsingar um landfræðilega staðsetningu tækis sem notað er til að nálgast Þjónustuna, sem getur innihaldið staðsetningu byggða á IP-tölu og önnur svipuð gögn.

  • Persónuupplýsingar: Allar upplýsingar sem tengjast persónugreindum eða persónugreinanlegum einstaklingi.

  • Þjónusta: Þjónustan eins og hún er skilgreind í 1. grein Skilmálanna.

  • Notkunargögn: Notkunargögn ná yfir upplýsingar sem safnast sjálfkrafa við notkun Þjónustunnar, svo sem IP-tölur, tegund vafra, heimsóttar síður, tími sem varið er á síðum og önnur greiningargögn varðandi hvernig Þjónustan er kölluð fram og hún notuð.

3. Gögnin sem við söfnum um þig

Við getum safnað, notað, geymt eða flutt mismunandi tegundir persónuupplýsinga um þig sem hér segir:

  • Auðkennisgögn.

  • Samskiptagögn.

  • Fjárhagsgögn.

  • Tækjagögn.

  • Efnisgögn, þar með taldar lífkennaupplýsingar á borð við talupptökur.

  • Notkunargögn.

  • Staðsetningargögn.

Gögnin þín eru ekki notuð til að þjálfa eða prófa líkön Miðeindar.

4. Viðkvæmar persónuupplýsingar og gögn í sérflokki

Við notkun Þjónustunnar skaltu ekki nema að vel athuguðu máli setja inn í inntak þitt (svo sem í texta til yfirlestrar eða í spurningu sem á að svara) svokölluð „gögn í sérflokki“ (eða „viðkvæmar persónuupplýsingar“), sérstaklega gögn sem afhjúpa kynþátt eða þjóðernisuppruna, stjórnmálaskoðanir, trúarbrögð eða lífsskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðafræðileg gögn, lífkennaupplýsingar til auðkenningar, heilsufarsupplýsingar eða gögn varðandi kynlíf eða kynhneigð einstaklings, hvort sem slík gögn tengjast þér eða öðrum einstaklingi. Ef slík gögn eru sett inn berð þú fulla ábyrgð á þeim.

Að sama skapi skaltu fjarlægja allar tilvísanir í einstaklinga (hvort sem þeir eru á lífi eða látnir) úr slíku inntaki áður en það er notað í tengslum við Þjónustuna til að tryggja að engar upplýsingar í inntakinu geti talist gögn í sérflokki eða viðkvæmar persónuupplýsingar. Ef slíkt er ekki gert berð þú fulla ábyrgð á gögnunum.

5. Hvernig er persónuupplýsingum þínum safnað?

Við munum safna og vinna úr upplýsingum um þig þegar:

  • Þú notar Þjónustuna, til dæmis með því að stofna aðgang að henni, setja inn inntak þitt, eða greiða fyrir hana.

  • Þegar þú notar Þjónustuna söfnum við einnig sjálfkrafa ákveðnum upplýsingum, þar með talið tækja- og notkunargögnum, ásamt tímabundinni sjálfvirkri vinnslu á öllu inntaki (svo sem texta til yfirlestrar eða spurningu sem á að svara) sem þú gefur í tengslum við Þjónustuna.

6. Hvernig við notum persónuupplýsingar þínar

Við munum einkum nota persónuupplýsingar þínar við eftirfarandi aðstæður:

  • Þegar þú hefur veitt skýrt samþykki þitt.

  • Þegar við þurfum þær til að framkvæma samning sem við erum að fara að gera eða höfum gert við þig á grundvelli Skilmálanna.

  • Þegar það er nauðsynlegt vegna lögmætra hagsmuna okkar (eða þriðja aðila) og hagsmunir þínir og grundvallarréttindi ganga ekki framar þeim hagsmunum.

  • Þegar við þurfum að uppfylla lagalega eða reglugerðarbundna skyldu.

7. Flutningur persónuupplýsinga þinna

Við kunnum að þurfa að flytja persónuupplýsingar til viðtakenda sem staðsettir eru í löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Slíkur flutningur mun aðeins eiga sér stað ef fullnægjandi vernd er tryggð í viðtökulandinu, eins og ákvarðað er hverju sinni af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, eða í gegnum viðeigandi öryggisráðstafanir á borð við stöðluð samningsákvæði Framkvæmdastjórnarinnar eða bindandi reglur fyrirtækis.

Ef slíkar öryggisráðstafanir eru ekki til staðar geta flutningar eftir sem áður átt sér stað ef skýrt samþykki er fengið eða ef nauðsynlegt er vegna framkvæmdar samnings eða til að stofna, beita eða verja lagalegar kröfur.

8. Vinnsluaðilar á okkar vegum

Við notum eftirfarandi þriðju aðila sem lykilvinnsluaðila í tengslum við veitingu Þjónustunnar, sem gætu móttekið og unnið úr ákveðnum persónuupplýsingum þínum:

OpenAI í gegnum Microsoft Azure

Tilteknir hlutar Þjónustunnar nýta mállíkön frá OpenAI í gegnum Microsoft Azure.

OpenAI getur geymt samskipti í 30 daga eða lengur í þeim skýra tilgangi að koma í veg fyrir misnotkun hugbúnaðarins.

Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu OpenAI Ireland Limited hér.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu Microsoft hér.

Anthropic

Tilteknir hlutar Þjónustunnar nýta mállíkön frá Anthropic í gegnum þjónustuna Google Vertex.

Hægt er að nálgast notkunarskilmála og vinnslusamning Anthropic í gegnum Vertex hér.

Anthropic

Tilteknir hlutar Þjónustunnar nýta mállíkön frá Google í gegnum þjónustuna Google Vertex.

Hægt er að nálgast þjónustuskilmála Google Vertex hér.

DigitalOcean

DigitalOcean veitir okkur hýsingarþjónustu.

Hægt er að nálgast viðeigandi vinnslusamning hér.

Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu DigitalOcean LLC hér.

Chargebee

Vinnsluaðili okkar Chargebee veitir okkur þjónustu við reikningagerð.

Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu Chargebee Inc. hér.

PayPal Braintree

Vinnsluaðili okkar PayPal Braintree veitir okkur greiðsluþjónustu.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu PayPal Pte. Ltd. hér.

Supabase

Vinnsluaðili okkar Supabase veitir okkur þjónustu við auðkenningu og utanumhald notenda.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu Supabase hér.

Hægt er að nálgast skilmála Supabase hér.

Google App Engine

Vinnsluaðili okkar Google App Engine veitir okkur bakendaþjónustu í gegnum Google Cloud.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu Google Cloud hér.

Google Firebase

Vinnsluaðili okkar Google Firebase veitir okkur þjónustu við auðkenningu notenda.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu Google Firebase hér.

PyannoteAI

Vinnsluaðili okkar PyannoteAI veitir okkur þjónustu við mælendagreiningu, sem er valfrjáls.

Hægt er að nálgast persónuverndaryfirlýsingu PyannoteAI hér.

9. Öryggi gagna

Við gerum nauðsynlegar tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja viðeigandi öryggisstig miðað við áhættuna og koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar tapist, séu notaðar eða aðgangur fáist að þeim á óheimilan hátt. Upplýsingar sem þú veitir okkur eru geymdar á öruggum netþjónum og við látum reglulega gera úttektir á kerfum okkar.

Við krefjum þess einnig að vinnsluaðilar á okkar vegum innleiði svipaðar öryggisráðstafanir.

Þar sem lykilorð er notað til að gera þér kleift að nota Þjónustuna, berð þú ábyrgð á að halda þessu lykilorði leynilegu. Við biðjum þig um að deila ekki lykilorði þínu með neinum.

Við höfum tekið upp verklag til að bregðast við grun um öryggisbrest persónuupplýsinga og munum tilkynna þér og viðeigandi eftirlitsaðila um slíkt þegar okkur ber lagaskylda til þess.

10. Varðveisla gagna

Við geymum persónuupplýsingar þínar eins lengi og eðlilegt og nauðsynlegt er í tengslum við veitingu Þjónustunnar og starfsemi okkar.

Í sumum tilfellum munum við gera persónuupplýsingar þínar ópersónugreinanlegar (þannig að þær verði ekki lengur tengdar þér) í rannsóknar- eða tölfræðilegum tilgangi, en í slíkum tilfellum getum við notað þessar upplýsingar ótímabundið án frekari tilkynningar til þín.

Að beiðni þinni eyðum við greiðslukortaupplýsingum 14 dögum eftir uppsögn áskriftar. Við erum skyldug samkvæmt lögum að geyma bókhaldsgögn í 7 ár.

Við geymum ekki inntak þitt þegar þú notar Þjónustuna nema þegar þú leyfir það sérstaklega. Upptökur frá Hreimi eru geymdar í þrjá mánuði og er eytt sjálfkrafa eftir það. Tíu nýjustu úttakstextarnir eru geymdir í Hreimi þar til þeim er eytt. Þú getur hvenær sem er slökkt á vistuninni í stillingum. Sé slökkt á vistun geymum við upptökur í Hreimi aðeins í nokkrar sekúndur á meðan upptakan er unnin og úttakstexta frá Hreimi aðeins þar til notandinn hefur séð hann og í engu tilviki lengur en í 14 daga.

11. Nákvæmni persónuupplýsinga þinna

Það er mikilvægt að persónuupplýsingarnar sem við geymum um þig séu nákvæmar og uppfærðar. Vinsamlegast láttu okkur vita, í gegnum Þjónustuna eða í gegnum samskiptaleiðirnar sem tilgreindar eru hér að ofan, ef persónuupplýsingar þínar breytast meðan á viðskiptasambandi okkar stendur.

Nánar má fræðast um lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hér.

12. Lagaleg réttindi þín

Við ákveðnar aðstæður hefur þú eftirfarandi réttindi samkvæmt persónuverndarlögum í tengslum við persónuupplýsingar þínar:

  • Beiðni um aðgang að persónuupplýsingum þínum.

  • Beiðni um leiðréttingu á persónuupplýsingum sem við geymum um þig.

  • Beiðni um takmörkun á vinnslu persónuupplýsinga þinna.

  • Beiðni um flutning persónuupplýsinga þinna.

  • Beiðni um eyðingu persónuupplýsinga þinna.

  • Að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna.

  • Að afturkalla samþykki.

13. Notkun vafrakaka

Við notum vafrakökur, sem eru litlar textaskrár sem eru geymdar á tækinu þínu þegar þú heimsækir vefsíðu okkar. Þær geyma upplýsingar sem við notum meðal annars til að muna notandaauðkenni og -stillingar, og greina notkun vefsíðunnar.

14. Breytingar á þessari persónuverndarstefnu

Við endurskoðum þessa persónuverndarstefnu reglulega. Nýjustu útgáfu má sjá á vef Málstaðar hverju sinni, undir vefslóðinni https://málstaður.is/personuvernd.

15. Samskipti

Ef þú hefur einhverjar spurningar um þessa persónuverndarstefnu eða hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á eftirfarandi netfangi: [email protected]