Hvað get ég sett inn eða skrifað mikinn texta í Erlendi?
Hægt er að nota Erlend án þess að greiða sérstaklega fyrir, en vegna kostnaðar við rekstur eru takmörk sett á það hversu mikið hver notandi getur þýtt hverju sinni og alls í mánuði.
Við stillum verði á áskrift eins mikið í hóf og hægt er og áskriftinni fylgir vegleg inneign fyrir notkunarkostnað.
Þú getur kynnt þér áskriftarleiðir og samanburð á áskriftarsíðunni okkar en hér að neðan er stutt yfirlit fyrir Erlend:
Ókeypis aðgangur
Þú getur þýtt allt að 50.000 stafi á mánuði, allt að 400 stafi í einu. Þú getur skrifað beint í ritil eða sent inn skjöl. Þú getur hlaðið niður skrám.
Föst áskrift
Þú getur þýtt allt að 1 milljón stafi á mánuði, allt að 100.000 stafi í einu. Þú getur fengið nákvæmari og samræmdari þýðingar með orðalistum.
Frjáls áskrift
Þú getur þýtt eins og þig lystir, allt að 100.000 stafi í einu, en þú greiðir fyrir notkun umfram inneign.