Hvernig get ég þýtt mynd- eða hljóðskrár?

Hægt er að senda mynd- og hljóðskrár á íslensku eða ensku inn í Hreim, fá út texta eða skjátexta, og senda þá í þýðingu í Erlendi á fjölmörg mál. 

Fyrir skjátexta fara þýðingarnar fram innan Hreims með því að smella á Þýða. Þá velur þú tungumál og þá orðalista sem á að nota við þýðingarnar.