Hvernig bý ég til orðalista?

Athugaðu að orðalistar eru aðeins í boði í frjálsri áskrift. Þú getur kynnt þér ólíkar áskriftarleiðir á áskriftarsíðunni okkar.

Þú getur búið til orðalista í notendaviðmóti Málstaðar undir Erlendur. Þar skráir þú hvaða orð eiga að þýðast hvernig fyrir hvaða tungumál. Þú getur einnig hlaðið upp orðalistum og sótt þína orðalista sem .csv eða .tsv skrár.

Til að sjá þína orðalista ferðu undir Orðalistar í hægri hliðarstikunni. Þú býrð til nýjan orðalista með því að smella á Nýr listi. Þú gefur listanum nafn og getur skilgreint það sérsvið sem á við. Þá færistu í viðmót til að bæta og breyta færslum, þar sem þú getur skrifað eina og eina inn í einu eða hlaðið upp færslum úr skrá með því að smella á þrípunktinn í efra hægra horninu. Orðalistar geta innihaldið færslur milli hvaða mála sem er, en þegar orðalistinn er virkjaður við þýðingu eru aðeins þær færslur sem passa við þýðingarmálin nýttar.