Hvernig þýði ég skjöl með Málstað?
Ef þú vilt fá þýðingu á skrá án þess að fara í gegnum ritilinn getur þú hlaðið upp skrá á sniðinu .docx, .odt, .pptx og .odp. Þú færð val um að færa í ritil eða þýða beint fyrir það sniðmát sem er líka stutt í ritli (.docx og .odt).
Ef þú þýðir skrána beint velurðu tungumál í hægri hlið gluggans og smellir á Þýða skjal. Þegar þýðingunni er lokið getur þú sótt þýðinguna eða hent henni. Þú hefur klukkustund til að sækja þýddu skrána, eftir það er henni eytt.