Hvernig virka uppflettingar í Erlendi?

Þú getur tvísmellt á orð í texta og flett upp í orðabók, hvort sem er fyrir upphafstextann eða þýðinguna.

Orðin ásamt orðabókafærslum birtast þá í hægri hliðarstikunni undir Uppflettingar

Þú getur líka flett beint upp í orðabókum Snöru í hægri hliðarstikunni með því að skrifa í leitarslána. Þú getur nýtt síur til að leita á ákveðnu tungumáli.

Uppflettingarnar nýtast á margvíslegan máta, hvort sem það er til að fá útskýringu á orði til að átta þig betur á því hversu vel það passar í merkingarsamhengið eða til að sjá hvernig það er þýtt í orðabókum Snöru.