Þarf ég að velja frummál þegar ég þýði í Erlendi?
Nei, Erlendur greinir sjálfkrafa á hvaða tungumáli textinn er sem þú skrifar eða límir inn. Áður en nóg er komið inn af texta til að greina það sést „Greina tungumál“ á hnappinum vinstra megin, en um leið og Erlendur hefur greint tungumálið birtist heiti þess í staðinn.
Þú getur valið frummálið sjálf/ur hvenær sem er í staðinn fyrir sjálfvirku greininguna, til dæmis ef þú veist nákvæmlega á hvaða máli textinn er eða ef Erlendur greinir hann ekki rétt. Athugaðu að á meðan sjálfvirk greining er valin er ekki hægt að víxla frum- og úttaksmáli, þú þarft fyrst að velja frummálið handvirkt til að geta víxlað.
Ef Erlendur getur ekki greint tungumálið, til dæmis vegna þess að of lítill eða óljós texti er kominn inn, birtist „Óþekkt“ í stað tungumálsheitis þar til meiri texti er kominn.