Get ég afritað texta beint úr Hreimi?
Já. Þú getur afritað textann án þess að sækja skrá, og valið nákvæmlega hvað fylgir með. Þú velur hvort mælendur og tímastimplar séu teknir með, og hvernig textinn skiptist í efnisgreinar, til dæmis eins og hann birtist í ritlinum, eftir mælanda og hléum, ein lína á hvern skjátexta, eða allur textinn í einni samfelldri efnisgrein.
Sýnishorn af textanum uppfærist um leið og þú breytir valkostunum, svo þú sérð nákvæmlega hvað lendir á klippispjaldinu áður en þú afritar.