Get ég séð skjátextana með upptökunni?
Þegar þú hefur talgreint upptöku getur þú spilað hana í spilaranum í viðmóti Hreims og skjátextinn birtist með. Þú getur smellt á textann og upptakan færist á samsvarandi stað. Þannig getur þú hlustað og horft á upptökuna samhliða því sem þú vinnur í textanum.