Get ég talað beint inn í Hreim?
Málstaður gerir greinarmun á stuttum hljóðbútum sem aðeins þarf að koma einu sinni á textaform en ekki geyma, og svo lengri, flóknari upptökum sem þurfa fínpússaðri vinnslu.
Hreimur er gerður til að vinna með langar upptökur, hvort sem það eru mynd- eða hljóðskrár. Viðmótið í Hreimi hentar mjög vel til að vinna með skjátextun, tímakóðun, mælendagreiningu og önnur eigindi umfram talgreinda textann. Viðmótið gerir ráð fyrir að mynd- eða hljóðskrár séu sendar inn, en ekki að talað sé beint inn.
Þegar um stuttar, tilfallandi upptökur er að ræða sem eiga bara að skila sér í stuttum textum er hægt að tala beint inn í viðmót Málfríðar eða Erlends.
Smelltu á hljóðnemann í tækjastikunni neðst í Málfríði eða Erlendi. Við það opnast lítill gluggi sem byrjar strax að hlusta. Þú getur stöðvað upptökuna hvenær sem er, hlustað á hana, eytt henni og byrjað aftur.
Veldu málið sem talað er í felliglugganum vinstra megin og smelltu á Talgreina. Við það færist textinn inn í ritilinn í Málfríði eða Erlendi og þú getur unnið áfram með hann. Athugaðu að notkunarkostnaður fellur til við notkun talgreiningarinnar í takt við verðskrá.