Geymir Hreimur gögnin mín?

Hljóðupptökur eru vistaðar tímabundið meðan á vinnslu stendur og svo sjálfvirkt eytt sólarhring síðar. Ef kveikt er á vistun eru upptökur geymdar í þrjá mánuði og er eytt sjálfkrafa eftir það. Upptökur í Málfríði og Erlendi sem eru talgreindar með hjálp Hreims eru ekki vistaðar umfram vinnslu. Þú getur hvenær sem er slökkt á vistuninni í stillingum. 

Textaúttakið er geymt í skyndiminni í gagnagrunnum Miðeindar og er aðgengilegt notandanum þegar hann fer næst inn í Hreim. Því er svo sjálfvirkt eytt úr skyndiminninu þegar notandi hefur séð það í Hreimi – eða annars í síðasta lagi eftir 3 daga. Textinn er hvorki vistaður í gagnagrunni né geymdur í annálum (logs). Ef kveikt er á vistun eru tíu nýjustu úttakstextarnir geymdir í Hreimi þar til þeim er eytt. Þú getur hvenær sem er slökkt á vistuninni í stillingum.

Hreimur geymir almenna tölfræði sem tengist lengd hljóðrásar. Þú getur kynnt þér persónuverndarstefnu Málstaðar fyrir nánari upplýsingar.