Hvað get ég talgreint mikið með Hreimi?

Hægt er að nota Hreim án þess að greiða sérstaklega fyrir, en vegna kostnaðar við rekstur eru takmörk sett á það hversu mikið hver notandi getur notað hverju sinni og alls í mánuði.

Við stillum verði á áskrift eins mikið í hóf og hægt er og áskriftinni fylgir vegleg inneign fyrir notkunarkostnað.

Þú getur kynnt þér áskriftarleiðir og samanburð á áskriftarsíðunni okkar en hér að neðan er stutt yfirlit fyrir Hreim:

Ókeypis aðgangur

Allt að 15 mínútur af talgreiningu og skjátextun á mánuði. Þú getur hlaðið upp skrám, allt að 2 GB/15 mínútum. 

Föst áskrift

Allt að 5 klst. af talgreiningu og skjátextun á mánuði. Þú getur hlaðið upp skrám, allt að 2 GB/5 klst. 

Frjáls áskrift

Þú getur hlaðið upp skrám, allt að 2 GB/10 klst.Ekkert hámark er á talgreiningu og skjátextun á mánuði heldur er greitt eftir notkun.