Hvað þýðir mælendagreining í Hreimi?

Þegar þú hleður upp mynd- eða hljóðskrá í Hreimi getur þú hakað við Mælendagreining. Þá skiptir Hreimur talgreinda textanum upp eftir því hver talar hverju sinni. Hreimur ákvarðar sjálfur nöfn mælenda út frá upplýsingum sem finnast í talinu, svo sem þegar einn mælandi ávarpar eða vísar til annars með nafni, eða mælendur kynna sig sjálfir með nafni.

Til að breyta mælendum eftir talgreiningu opnar þú mælendalistann. Þar sérðu alla mælendur og hversu oft hver þeirra kemur fyrir. Þú getur breytt nafni hvers og eins, bætt við nýjum mælanda, eða fjarlægt mælanda sem er ekki lengur í notkun. Ef Hreimur hefur ranglega greint tal frá einum mælanda sem tvo aðskilda getur þú sameinað þá í einn. Allir bútarnir sem tilheyrðu þeim sem hverfur fá þá nafn þess sem eftir stendur. Sérhver breyting er sjálfstætt skref sem hægt er að afturkalla.

Þegar þú hleður niður talgreinda textanum getur þú hakað við Mælendur. Þá fylgja þessar upplýsingar með í úttaksskránni, hvort sem það er .srt, .vtt, .txt eða .docx skrá.