Hvaða tungumál get ég fengið út úr Hreimi?
Þú getur tekið talgreint efni úr Hreimi, hvort sem það er á íslensku eða öðrum tungumálum, og sent það beint í Erlend til að fá þýddan texta. Athugið að fyrir beina þýðingu á skjátextum við myndbönd fer sú vinnsla fram innan Hreims, þótt Erlendur vinni þar bak við tjöldin. Ritillinn í Erlendi er ætlaður almennum textum og styður ekki séreigindi í skjátextum, svo sem tímakóða og mælendur.
Erlendur getur þýtt milli nánast hvaða tungumála sem er. Hafðu samband við malstadur@mideind.is ef þú sérð ekki þitt tungumál í listanum.