Hvernig leita ég í og sía texta í Hreimi?

Þú getur leitað í talgreinda textanum með því að smella á leitartáknið eða ýta á Ctrl/Cmd+F. Leitin sýnir fjölda niðurstaðna og þú getur stokkið milli þeirra með örvahnöppunum.

Auk leitar getur þú síað hvaða línur birtast með því að smella á síutáknið. Þar getur þú valið að sjá aðeins línur frá tilteknum mælanda, eða aðeins línur sem eru merktar óvissar, þá annaðhvort óviss texti eða óviss mælandi. Þú getur endurstillt síuna til að sjá allan textann aftur.