Hvernig nýtist Hreimur mér?

Hreimur er háþróuð talgreiningarlausn sem breytir töluðu máli í texta á augabragði. Hreimur sparar þér dýrmætan tíma við að rita niður fundi, viðtöl eða fyrirlestra og gerir þér kleift að vinna með hljóð- og myndbönd á alveg nýjan hátt, hvort sem það er á íslensku eða öðrum tungumálum.

Það sem þú getur gert beint í Hreimi

Talgreining

Þú getur hlaðið upp hljóðskrám eða myndböndum og Hreimur ritar textann sjálfkrafa niður. 

Skjátextun

Talgreindi textinn inniheldur tímakóða bak við tjöldin og því auðvelt að hlaða honum niður sem skjátextaskrá.

Uppritun (transcript)

Þú getur líka fengið textann mælendagreindan, þannig að fram komi hver segir hvað í upptökunni. Þú getur svo hlaðið efninu niður með tímakóðum og gert hlaðvarpið þitt mun aðgengilegra og leitanlegra, bæði fyrir hlustendur og leitarvélar.

Breytingar á textum og skjátextum

Hreimur inniheldur sérhæfðan ritil þar sem þú getur hlustað á upptökuna og lagfært textann samhliða, en ritillinn hoppar sjálfkrafa á réttan stað í hljóðinu þegar þú smellir á orð.

Samþætting við Snöru

Þú getur flett beint upp í orðabókum Snöru í hægri hliðarstikunni með því að skrifa í leitarslána. Þú getur nýtt síur til að leita á ákveðnu tungumáli.

Uppflettingarnar nýtast á margvíslegan máta, hvort sem það er til að fá útskýringu á orði til að átta þig betur á því hversu vel það passar í merkingarsamhengið eða til að sjá hvernig það er þýtt í orðabókum Snöru.

Flóknari verkflæði og samspil við aðrar lausnir Málstaðar

Hreimur spilar vel saman við aðrar lausnir í Málstað og er oft fyrsta skrefið í flóknara verkflæði til að hjálpa þér að vinna þitt efni frá A til Ö.

Úr tali í yfirfarinn texta

Þú getur tekið talgreint efni úr Hreimi og sent í Málfríði til yfirferðar, samantektar eða einföldunar. Ef þú ert að vinna með erlent efni getur þú fyrst fengið íslenska þýðingu með Erlendi og sent hana svo í Málfríði.

Úr tali í þýddan texta

Þú getur tekið talgreint efni úr Hreimi, hvort sem það er á íslensku eða öðrum tungumálum, og sent það beint í Erlend til að fá þýddan texta. Athugið að fyrir beina þýðingu á skjátextum við myndbönd fer sú vinnsla fram innan Hreims, þótt Erlendur vinni þar bak við tjöldin. Ritillinn í Erlendi er ætlaður almennum textum og styður ekki séreigindi í skjátextum, svo sem tímakóða og mælendur.

Hvernig vinna lausnirnar saman frá A til Ö?

Hér eru nokkrar algengar samsetningar á lausnum Málstaðar sem notendur nýta sér í daglegu starfi:

Fundargerðir eða fyrirlestrar á erlendu máli

Þú ert með klukkutíma langa upptöku af fundi, fyrirlestri eða viðtali á erlendu máli og þarft að deila helstu punktum með samstarfsfólki á íslensku.

Upptaka af fundi eða fyrirlestri á erlendu máli er talgreind í Hreimi. Textinn er sendur í Erlend og þýddur á íslensku. Íslenski textinn er sendur í Málfríði til að búa til stutta og hnitmiðaða samantekt fyrir samstarfsfólk.

Markaðssetning og tölvupóstar

Þú þarft að skrifa mikilvæga tilkynningu eða markaðsefni. Textinn þarf að vera skýr og fagmannlegur og bæði á íslensku og erlendu tungumáli.

Þú lest fyrstu hugmyndir inn með hljóðnemanum í Málfríði eða sendir upptöku í gegnum Hreim. Ef upptakan er á öðru tungumáli en íslensku getur þú notað Erlend til að þýða talgreinda textann. Þú getur sent textann í gegnum einföldun eða samantekt og fengið textann á samfelldu máli. Þú nýtir Málfríði sem ritstoð þar til textinn er fullbúinn. Þú sendir hann í Erlend til að fá hann á öðrum tungumálum fyrir erlenda miðla eða vefsíðu.