Hvernig þýði ég skjátexta?

Athugið að fyrir beina þýðingu á skjátextum við myndbönd fer sú vinnsla fram innan Hreims, þótt Erlendur vinni þar bak við tjöldin. Ritillinn í Erlendi er ætlaður almennum textum og styður ekki séreigindi í skjátextum, svo sem tímakóða og mælendur.

Þegar þú hefur talgreint upptöku í Hreimi getur þú þýtt talgreinda textann á önnur tungumál með því að smella á Þýða. Þá velur þú tungumál og þá orðalista sem á að nota við þýðingarnar. 

Þegar textinn er fullbúinn getur þú hlaðið honum niður með því að smella á táknið fyrir niðurhal. Þú getur þá valið á hvaða tungumáli þú vilt sækja textann. Þú getur líka valið skráarsnið (.srt, .vtt og .txt) og hvort upplýsingar um mælendur eigi að koma fram í skránni.

Þú getur líka sótt upptökuna með skjátextum með því að smella á þrípunktinn í efra hægra horni upptökunnar. Þetta þýðir að þú getur opnað skrána í myndbandsspilurum eins og VLC og Windows Media Player og þar getur þú valið skjátextana (subtitle track) fyrir skrána. Þetta þýðir ekki að skjátextarnir hafi verið brenndir inn í myndefnið. Með þessari aðferð getur hver sem opnar upptökuna nýtt sér aðgengisstillingar í spilaranum, svo sem til að stækka letrið eða breyta lit og bakgrunni skjátextans.