Hvaða skjölum tekur Lísa á móti og hvaða sniðum skilar hún?

Lísa les PDF-skjöl (.pdf) og myndir (.png, .jpg), að hámarki 100 MB að stærð. Hámarksfjöldi síðna í einu verkefni er 1.000 fyrir áskrifendur, en 5 síður í ókeypis áætluninni.

Niðurstöðuna er hægt að sækja sem Word-skjal (.docx), OpenDocument-skjal (.odt), Markdown-skjal (.md) eða hreinan texta (.txt). Word-skjal er sjálfgefið snið, en þú getur skipt um snið eftir að ljóslestri lýkur án þess að þurfa að senda skjalið aftur í ljóslestur.