Hvernig nýtist Lísa mér?

Lísa er ljóslestrarlausn sem breytir skönnuðum skjölum, PDF-skjölum og myndum í ritvinnsluskjal á augabragði. Lísa sparar þér tímann sem færi í að vélrita gamalt prentað efni, skannaðar myndir af texta eða eyðublöð, og skilar þér breytanlegu skjali í staðinn.

Það sem þú getur gert beint í Lísu

Ljóslestur

Þú hleður upp skjali (.pdf, .png eða .jpg) og Lísa les textann og skilar honum sem ritvinnsluskjali. Áður en ljóslesturinn hefst áætlar Lísa fjölda síðna og hvað verkefnið mun kosta, svo þú veist við hverju þú mátt búast.

Myndir og gröf úr skjalinu

Ef skjalið inniheldur myndir eða gröf sem þú vilt halda í niðurstöðunni, hakar þú við „Sækja myndir úr skjali“ áður en ljóslesturinn hefst. Lísa greinir þær og fellir þær inn í útkomuna.

Val um skráarsnið

Niðurstaðan er sótt sem Word-skjal (.docx) sjálfgefið, en þú getur líka sótt hana sem OpenDocument (.odt), Markdown (.md) eða hreinan texta (.txt).

Flóknari verkflæði og samspil við aðrar lausnir Málstaðar

Lísa er oft fyrsta skrefið þegar skannað eða prentað efni þarf að fara í frekari vinnslu annars staðar í Málstað.

Úr skönnuðu skjali í yfirfarinn texta

Þegar ljóslestri lýkur getur þú sent niðurstöðuna beint í Málfríði til yfirlestrar með einum smelli, án þess að vista og hlaða skjalinu upp aftur.

Úr skönnuðu skjali í þýddan texta

Á sama hátt getur þú sent ljóslesna textann beint í Erlend til að fá hann þýddan, hvort sem upprunalega skjalið var á íslensku eða öðru tungumáli.

Byrjað í Málfríði eða Erlendi

Þú þarft ekki alltaf að byrja í Lísu. Ef þú dregur skannað skjal eða mynd beint inn í Málfríði eða Erlend, ljóslesa þau efnið sjálfkrafa fyrst með hjálp Lísu og halda svo áfram með niðurstöðuna í sínu eigin verkflæði, allt í einu skrefi.

Google Drive

Þú getur flutt skjöl beint inn úr Google Drive í stað þess að hlaða þeim upp handvirkt, og sent niðurstöðuna aftur út í Google Drive að loknum ljóslestri.

Hvernig vinna lausnirnar saman frá A til Ö?

Hér er algeng samsetning sem notendur nýta sér í daglegu starfi:

Gamalt, skannað skjal á erlendu máli verður að íslenskum texta

Þú ert með skannað PDF-skjal, til dæmis gamla samninga eða greinar á ensku, og þarft að vinna með efnið á íslensku. Skjalið er ljóslesið í Lísu. Textinn er sendur í Erlend og þýddur á íslensku. Íslenski textinn er svo sendur í Málfríði til yfirlestrar eða samantektar áður en hann er notaður áfram. Þú getur hlaðið útkomunni upp á Google Drive.