Hvernig les ég yfir skjöl með Málstað? Er hægt að tengja yfirlestur Málfríðar við Microsoft Word eða Google Docs?
Í augnablikinu er Málfríður aðeins aðgengileg á málstaður.is. Hins vegar er hægt að senda inn Word skjöl og fleiri textaskjöl og fá þau yfirlesin beint út án þess að þurfa að fara í gegnum ritilinn í Málfríði.
Ef þú vilt fá þýðingu á skrá án þess að fara í gegnum ritilinn getur þú hlaðið upp skrá á sniðinu .docx, .odt, .pptx og .odp. Þú færð val um að færa í ritil eða þýða beint fyrir það sniðmát sem er líka stutt í ritli (.docx og .odt).
Ferlið er einfalt fyrir Microsoft Word, þú sendir .docx skjalið inn í Málfríði og færð yfirlesið eintak sem .docx til baka. Þú getur svo opnað yfirlesna skjalið í Word og farið yfir ábendingarnar í yfirlestrarham (track changes).
Þú getur sótt skrá í Google Docs sem .docx eða .odt og sent inn í Málfríði. Þú getur opnað það í Microsoft Word eða öðrum ritvinnsluforritum, ef þú vilt vinna skjalið áfram í Google Docs getur þú hlaðið því aftur upp í Google Drive.