Er textinn sem ég skrifa í yfirlestur Málfríðar geymdur einhvers staðar?
Textinn sem þú skrifar er geymdur í vafranum þínum þannig að hann sé aðgengilegur á milli vinnulotna. Hann er ekki geymdur á þjónum Miðeindar. Við mælum ávallt með því að efni sé vistað reglulega. Hægt er að slökkva á geymslu textans í stillingum.
Persónuverndarstefna og notkunarskilmálar Málstaðar fara ítarlegar í yfir málin. Hafðu samband við malstadur@mideind.is ef þú hefur frekari spurningar um persónuvernd og öryggi.