Get ég talað inn í Málfríði?
Þú getur bæði talað beint inn í viðmót Málfríðar og farið í gegnum Hreim fyrir áframhaldandi vinnslu á töluðu máli.
Þegar um stuttar, tilfallandi upptökur er að ræða er hentugast að tala beint inn í viðmót Málfríðar.
Smelltu á hljóðnemann í tækjastikunni neðst í Málfríði. Við það opnast lítill gluggi sem byrjar strax að hlusta. Þú getur stöðvað upptökuna hvenær sem er, hlustað á hana, eytt henni og byrjað aftur. Athugaðu að upptökurnar eru ekki geymdar á neinn hátt eftir vinnslu.
Veldu málið sem talað er í felliglugganum vinstra megin og smelltu á Talgreina. Við það færist textinn inn í ritilinn í Málfríði og þú getur unnið áfram með hann. Athugaðu að notkunarkostnaður fellur til við notkun talgreiningarinnar í takt við verðskrá.
Þegar um mynd- og hljóðskrár er að ræða hentar best að fara í gegnum Hreim.