Hvernig nýtist Málfríður mér?
Málfríður er alhliða ritstoð sem hjálpar þér að skrifa skýrari og hnitmiðaðri texta. Þú getur nýtt Málfríði á margvíslegan hátt, allt frá yfirlestri yfir í flóknari verkflæði þar sem lausnir Málstaðar vinna saman.
Það sem þú getur gert beint í Málfríði
Yfirlestur
Málfríður les yfir textann þinn og kemur með ábendingar um það sem betur mætti fara, hvort sem er í stafsetningu eða málfari.
Læsileikamat
Málfríður greinir flækjustig, setningalengd og orðaval til að meta læsileika textans. Læsileikamatið varpar ljósi á læsileika textans en tekur ekki mið af efnisinnihaldi eða málfari textans. Til að skoða textann frá annarri hlið eru einnig gefin upp þau orð í textanum sem koma sjaldnast fyrir í útgefnum íslenskum textum og eru líkleg til að þurfa umorðun eða útskýringu.
Samantekt
Málfríður getur dregið fram kjarnann úr löngum og flóknum textum og búið til hnitmiðaða samantekt.
Einföldun
Málfríður getur tekið flókinn lagatexta, tæknimál eða tyrfið skriffinnskumál og umorðað það yfir á skýrt, auðskiljanlegt og aðgengilegt nútímamál án þess að merkingin glatist.
Samþætting við Snöru
Nú geturðu valið texta í Málfríði, stakt orð eða fleiri, og flett beint í orðabókum Snöru með því að velja eitt eða fleiri orð. Uppflettingarnar nýtast meðal annars til að fá útskýringu á orði til að átta þig betur á því hversu vel það passar í merkingarsamhengið og til að finna samheiti sem passar betur í textann.
Google Drive
Þú getur flutt skjöl beint inn úr Google Drive í stað þess að hlaða þeim upp handvirkt, og sent niðurstöðuna aftur út í Google Drive þegar þú ert tilbúin/n.
Flóknari verkflæði og samspil við aðrar lausnir Málstaðar
Málfríður verður enn öflugri með fleiri tengingum við vistkerfi Málstaðar.
Ritstoð
Málfríður nýtist sem alhliða ritstoð í skriftarferlinu. Þú skrifar texta og nýtir uppflettingarnar til að finna viðeigandi orð. Málfríður les yfir textann jafnóðum og kemur með ábendingar. Læsileikamatið uppfærist í sífellu og þú getur útskýrt betur eða umorðað orð sem birtast þar. Ef þú átt erfitt með að finna gott orðalag getur þú notað einföldun til að fá strax uppástungur að skýrari umorðun.
Skjalayfirlestur
Í stað þess að afrita texta geturðu hlaðið upp heilum skjölum (s.s. Word skjölum), hvort sem er til að vinna áfram í ritlinum eða til að fá yfirlesið skjal á sama sniðmáti til baka.
Úr skönnuðu skjali í yfirfarinn texta
Ef skjalið þitt er skannað eða á mynd- eða PDF-formi getur þú ljóslesið það í Lísu og sent niðurstöðuna beint í Málfríði til yfirlestrar, án þess að vista skjalið og hlaða því upp aftur.
Úr tali í yfirfarinn texta
Þú getur tekið talgreint efni úr Hreimi og sent í Málfríði til yfirferðar, samantektar eða einföldunar. Ef þú ert að vinna með erlent efni getur þú fyrst fengið íslenska þýðingu með Erlendi og sent hana svo í Málfríði.
Hvernig vinna lausnirnar saman frá A til Ö?
Hér eru nokkrar algengar samsetningar á lausnum Málstaðar sem notendur nýta sér í daglegu starfi:
Fundargerðir og glósur
Þú ert með klukkutíma langa upptöku af fundi, fyrirlestri eða viðtali á erlendu máli og þarft að deila helstu punktum með samstarfsfólki á íslensku.
Upptakan er talgreind í Hreimi. Talgreindi textinn er sendur í Erlend og þýddur á íslensku. Íslenski textinn er sendur í Málfríði til að búa til stutta og hnitmiðaða samantekt sem þú getur deilt með samstarfsfólki þínu.
Markaðssetning og tölvupóstar
Þú þarft að skrifa mikilvæga tilkynningu eða markaðsefni. Textinn þarf að vera skýr og fagmannlegur og bæði á íslensku og erlendu tungumáli.
Þú lest fyrstu hugmyndir inn með hljóðnemanum í Málfríði eða sendir upptöku í gegnum Hreim. Ef upptakan er á öðru tungumáli en íslensku getur þú notað Erlend til að þýða talgreinda textann. Þú getur sent textann í gegnum einföldun eða samantekt og fengið textann á samfelldu máli. Þú nýtir Málfríði sem ritstoð þar til textinn er fullbúinn. Þú sendir hann í Erlend til að fá hann á öðrum tungumálum fyrir erlenda miðla eða vefsíðu.
Úrvinnsla á erlendu efni
Þú þarft að fara yfir umfangsmikið efni, svo sem erlendar reglugerðir, markaðsskýrslur eða tækniskjöl, jafnvel á mörgum tungumálum, og draga fljótt út aðalatriðin.
Þú færð íslenska þýðingu á skjölunum með Erlendi. Þú nýtir samantekt Málfríðar til að sjá fljótt kjarnann í efnistökunum.