Hvað get ég sett inn eða skrifað mikinn texta í Málfríði?
Hægt er að nota Málfríði án þess að greiða sérstaklega fyrir, en vegna kostnaðar við rekstur eru takmörk sett á það hversu mikið hver notandi getur notað hana hverju sinni og alls í mánuði.
Við stillum verði á áskrift eins mikið í hóf og hægt er og áskriftinni fylgir vegleg inneign fyrir notkunarkostnað.
Þú getur kynnt þér áskriftarleiðir og samanburð á áskriftarsíðunni okkar en hér að neðan er stutt yfirlit fyrir Málfríði:
Ókeypis aðgangur
Þú getur skrifað í ritil og sent allt að 400 stafi í einu í yfirlestur.
Föst áskrift
Þú getur sent allt að 30.000 stafi í einu í yfirlestur.
Frjáls áskrift
Þú getur sent allt að 30.000 stafi í einu í yfirlestur. Ekkert hámark er á samantekt og einföldun heldur er greitt eftir notkun.