Hvaða gögn eru geymd við yfirlestur Málfríðar?
Málfríður geymir aðeins almenna tölfræði um þær ábendingar sem eru samþykktar eða hafnað, og fjölda stafa sem notandi hefur sent inn.
Við söfnum ekki efnislegum upplýsingum um leiðréttingar sem Málfríður stingur upp á. Engir textar eða textabútar eru geymdir.
Persónuverndarstefna og notkunarskilmálar Málstaðar fara ítarlegar yfir málin, hafðu samband við malstadur@mideind.is ef þú hefur frekari spurningar um persónuvernd og öryggi.