Hvernig fletti ég upp í orðabókum Snöru innan Málfríðar?
Þú getur tvísmellt á orð í texta og flett upp í orðabók, orðin ásamt orðabókafærslum birtast þá í hægri hliðarstikunni undir Uppflettingar.
Þú getur líka flett beint upp í orðabókum Snöru í hægri hliðarstikunni með því að skrifa í leitarslána.
Uppflettingarnar nýtast á margvíslegan máta, hvort sem það er til að fá útskýringu á orði til að átta þig betur á því hversu vel það passar í merkingarsamhengið eða til að finna samheiti sem passar betur í textann.