Hvernig hunsa ég ábendingar? Get ég beðið Málfríði að hætta að leiðrétta ákveðin atriði?

Málfríður hefur sinn stíl og bendir á það sem fellur ekki að honum. Við höfum nú bætt við möguleika á að hunsa ákveðna hluti sem Málfríður bendir á sem eru hluti af þínum höfundarstíl. Hægt er að skoða ábendingu í hliðarstiku eða í ritlinum og smella á Hunsa ábendingu. Eftir það sérðu ekki ábendingar af því tagi í Málfríði. Þú getur skoðað þær ábendingar sem þú hefur hunsað undir Hunsaðar ábendingar og getur hvenær sem er hætt að hunsa þær.