Hvernig vinn ég úr ábendingum Málfríðar?

Þegar þú skrifar eða límir inn texta í Málfríði fer yfirlestur Málfríðar af stað og gefur ábendingar um það sem mætti betur fara.

Viðeigandi orð eru þá undirstrikuð í textanum og þú getur smellt á hvert og eitt atriði til að samþykkja ábendinguna eða hafna henni.

Ábendingarnar birtast einnig í hægri hliðarstikunni og hægt er að fara yfir þær þar í röð. Þú getur smellt á hverja ábendingu til að fá ítarlegri upplýsingar um hana.

Ef þér finnst ábending ekki eiga við getur þú smellt á þrípunktinn og valið Hunsa ábendingu alltaf. Við það færist hún í lista hunsaðra ábendinga sem hægt er að skoða í hægri hliðarstikunni.

Eftir það sérðu ekki lengur slíkar ábendingar fyrir þinn texta. Þú getur hvenær sem er séð þær ábendingar sem eru hunsaðar og hætt að hunsa ábendinguna.