Hvernig virkar læsileikamat Málfríðar?

Þegar texti er skrifaður eða límdur inn í viðmótið birtist neðst í hægri hliðarstikunni greining á því hversu læsilegur textinn er. Læsileikamatið er byggt á einfaldri aðferð sem getur gefið hugmynd um hversu þungur texti er í lestri út frá lengd málsgreina og lengd orða. Formúlan reiknar stig út frá meðalfjölda orða í hverri málsgrein og meðalfjölda atkvæða í hverju orði og hefur verið löguð að íslensku. Fleiri stig gefa til kynna léttlesnari texta, enda mælir formúlan læsileika en ekki erfiðleika.

Læsileikamatið varpar ljósi á læsileika textans en tekur ekki mið af efnisinnihaldi eða málfari textans. Til að skoða textann frá annarri hlið eru einnig gefin upp þau orð í textanum sem koma sjaldnast fyrir í útgefnum íslenskum textum. Það þýðir ekki endilega að þau eigi ekki heima í textanum, en þau eru líkleg til að geta vafist fyrir lesendum textans og henta til að umorða eða útskýra nánar. Hægt er að smella á hvert orð til að sjá hvar það kemur fyrir í textanum, ef orð kemur oft fyrir er hægt að smella oft til að sjá alla staði í textanum.

Saman gefa læsileikamatið og óalgengu orðin ágæta mynd af því hversu þægilegur textinn er aflestrar og hvað í honum gæti talist flókið og þurft frekari útskýringar eða umorðun. Önnur virkni innan Málfríðar, einfalt mál sem finna má undir textavinnslu í hægri hliðarstikunni, gagnast svo vel við að umorða textann eða í það minnsta fá hugmynd að orðalagi sem gæti verið aðgengilegra. 

Virknin bætir mikilvægri vídd við Málfríði sem auðveldar þér að sníða textann betur að þínum markhóp og að gera hann aðgengilegri.