Ég fékk boð í hóp en kemst ekki inn

Farðu í notendavalmyndina niðri til vinstri og smelltu á örvarnar undir netfanginu. Athugaðu hvort nafnið á hópnum birtist í listanum og smelltu á hann. Við það færistu yfir í hópinn.

Stundum er vefumhverfi stjórnað af fyrirtækinu, svo sem í Microsoft Azure. Þá gæti þurft að hvítlista Málstað fyrir innra netið. Hafðu samband við tæknideild þíns fyrirtækis.

Ef ekkert gengur, hafðu samband við malstadur@mideind.is.