Ég get ekki skráð mig inn. Hvað á ég að gera?
Skoðaðu fyrst hvaða innskráningarleið þú notaðir. Var það netfang og lykilorð, eða notaðirðu innskráningarferli Google eða Microsoft?
Ef þú manst ekki lykilorðið þitt getur þú smellt á Gleymt lykilorð?. Þá færðu tölvupóst með leiðbeiningum sendan. Athugaðu að hann getur endað í ruslasíunni (spam).
Ef ekkert gengur, hafðu samband við malstadur@mideind.is.