Ég vil ekki að Málstaður geymi gögnin mín. Hvað get ég gert?

Málstaður geymir eins lítið af gögnum og hægt er án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar. Gögnin þín eru hvergi notuð til þjálfunar nema þú hafir veitt upplýst samþykki fyrir því.

Ef kveikt er á vistun er þitt efni, svo sem upptökur og textar, geymt lengur aðeins í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda. Þú getur hvenær sem er slökkt á vistuninni í stillingum. 

Fræðast má um persónuverndarstefnu Málstaðar á https://malstadur.mideind.is/personuvernd. Hafðu samband við personuvernd@malstadur.is ef þú þarft ítarlegri upplýsingar eða strangari kjör.