Get ég fengið forritaskil (API) fyrir lausnir Málstaðar? Hvernig nota ég þau?
Vöruvirkni Málstaðar er aðgengileg í gegnum forritaskil (API) á https://api.malstadur.is/. Til þess að fá aðgang að forritaskilunum þarf fyrst að stofna til frjálsrar áskriftar. Þá geta eigendur og stjórnendur áskriftar nálgast síðu um forritaskil í notendavalmyndinni niðri til vinstri. Þar er hægt að búa til API lykla með tilgreindum réttindum og gildistíma, ásamt því að fylgjast með notkun og kostnaði.
Þú getur lesið nánar um forritaskilin og séð notkunardæmi í pistli á heimasíðu Miðeindar.