Hefur Málstaður aðgang að kortaupplýsingunum mínum?
Einu upplýsingarnar sem þörf er á fyrir innskráningu þína á Málstað er tölvupóstfang. Til þess að skrá þig í fasta áskrift að Málstað þarftu að auki að gefa upp kortaupplýsingar. Kortaupplýsingarnar eru dulkóðaðar og meðhöndlaðar af þriðja aðila sem Miðeind telur traustan en tekur ekki ábyrgð á. Miðeind hefur ekki aðgang að kortaupplýsingum viðskiptavinar, öðrum en kortategund, síðustu 4 tölum kortanúmers og hvenær kortið rennur út. Notendur sem hætta í áskrift geta hvenær sem er beðið um að kortaupplýsingar þeirra séu fjarlægðar með því að senda póst á personuvernd@mideind.is. Að öðru leyti er upplýsingum eytt úr kerfinu 14 dögum eftir að áskrift lýkur.