Hvað gerir Miðeind til að tryggja öryggi Málstaðar?
Miðeind undirgengst reglulega öryggisúttekt óháðs þriðja aðila á kerfum sínum. Miðeind áskilur sér rétt til að banna notendur ef skilmálum er ekki fylgt. Allir undirvinnsluaðilar eru metnir út frá öryggi og hvert gögn eru send.
Málstaður er með viðskiptavini með viðkvæm gögn og sérkröfur, einnig hafa stök verkefni sem nota Málstað gengið í gegnum mat og ferli með viðeigandi aðilum (Persónuvernd, Siðanefnd o.s.frv.).
Ef þörf er á getum við gert sérstakan vinnslusamning eða undirvinnslusamning, hafðu samband við personuvernd@malstadur.is.