Hvað má ég gera við forritaskil Málstaðar?

Þú mátt aðeins nýta forritaskil (API) Málstaðar í tengslum við eigin rekstur eða til innri nota í hugbúnaðarlausnum þínum, nema um annað sé skriflega samið. Til dæmis er þér óheimilt að:

  • Endurselja, framselja eða leigja aðgang að API tengingunni til þriðja aðila.

  • Nota API tenginguna til þess að byggja upp, bjóða upp á eða starfrækja þjónustu sem er sambærileg eða í beinni samkeppni við kjarnavirkni Málstaðar. Þetta á meðal annars við um að bjóða upp á opið viðmót eða vefsíðu þar sem almenningi eða utanaðkomandi notendum er gefinn kostur á að nýta yfirlestur eða aðra virkni hugbúnaðarins í gegnum millilið.