Hvaða gögnum safnar Málstaður?

Málstaður geymir eins lítið af gögnum og hægt er án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar. Miðeind heldur utan um almenna tölfræði og færsluskrár (logga) til að greina notkun Málstaðar og til að bæta þjónustu. Tölfræðin er geymd í 30 daga að hámarki. Ef kveikt er á vistun er þitt efni, svo sem upptökur og textar, geymt lengur aðeins í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda. Þú getur hvenær sem er slökkt á vistuninni í stillingum. 

Fræðast má um persónuverndarstefnu Málstaðar á https://malstadur.mideind.is/personuvernd. Hafðu samband við personuvernd@malstadur.is ef þú þarft ítarlegri upplýsingar.